Vertu velkomin/n!

Þú ert vafalaust komin hingað á þetta form af því að samfélagið skiptir þig máli. Þér er annt um að okkur takist að greiða leið frambjóðenda Samfylkingarinnar inn á þing svo að við getum haldið áfram að auka jöfnuð og frelsi, bjarga náttúrunni, berjast gegn sérhagsmunum og móta samfélagið.

Það er nauðsynlegt að við tökum öll höndum saman næstu tvo mánuði og hjálpumst að við að kynna fyrir fólki stefnuna, hlusta á kjósendur, tala saman og breiða út boðskapinn. Það verður mikil vinna og því fleiri sem leggja hönd á plóg, því öflugri verður baráttan.

En kosningabarátta er ekki bara púl. Hún verður stórkostlega skemmtileg, með partýum, plottfundum yfir bjór í miðri viku, þankahríðum, faðmlögum, trúnó, rökræðum og svefnleysi. Og þú mátt vera með! Þú átt að vera með!

Hér gefst þér kostur á að skrá þig sem sjálfboðaliða í kosningabarátu Ungra jafnaðarmanna. Allir eru gjaldgengir til að hjálpa og öllum verður vel tekið. Ef þú hefur einhverjar spurningar, athugasemdir eða áhugaverðar bollaleggingar er þér velkomið að hringja í kosningastýru Ungra jafnaðarmanna, Ingu Auðbjörgu, hvenær sem er sólahringsins (8966120). Nú eða senda henni póst á ingaausa@gmail.com