Kosningarnar snúast um stefnumótun

Sveitastjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi snúast um stefnumótun. Samvinnan í borginni hefur tekist ágætlega, og er það að þakka ábyrgum og samstarfsfúsum minnihluta Samfylkingar og Vinstri grænna.

Ábyrgð Samfylkingarinnar

Samfylkingin þarf að axla ábyrgð. Það er ekki fyrr en að flokkurinn hefur gert það, sem hann endurheimtir aftur trúverðugleika sinn sem jafnaðarmannaflokkur.

ECA Program Ltd.

Fyrirhuguð starfsemi ECA Program Ltd. hefur vakið upp umræðu á Íslandi. Fyrirtækið hyggst byggja upp herþotuþjónustu. En hvað vitum við um þetta fyrirtæki?

Icesave fyrir Hérðasdóm Reykjavíkur?

Beint lýðræði getur verið gott ð mörgu leiti. Það skapar mikilvæga umræðu auk þess sem að ákvörðurnarvaldið færist af höndum fárra yfir á hendur allra. Mjög gott mál.

Nútíma þrælahald á Íslandi

LEIÐARI Íslendingar geta ekki lengur litið fram hjá því að mansal eigi sér stað í samfélaginu okkar.

LEIÐARI Að minnsta kosti 59 fórnarlömb mansals hafa komið fram á Íslandi á síðustu þremur árum, samkvæmt sláandi nýrri skýrslu Rauða krossins. Í þriðjungi tilfella tengdust málin kynlífsiðnaði.
Mansal er einhver ljótasti glæpur sem fyrirfinnst í heiminum og áætla Sameinuðu [...]

Hið almenna en ekki hið sértæka

Leiðari dagsins varar við því að Samfylkingin láti draga sig út í pólitík sértækra lausna og dýrra fjárfestinga skattborgara í jörðum og fyrirtækjum. Það eru til aðrar og betri leiðir til að koma vilja almennings til skila við atvinnulífið.

Samfylkingin verður að gæta þess að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn dragi sig ekki út í forað sameignarstefnu og [...]

Svipuhögg og flengingar

Nú eru tímamót þótt ferðin sé rétt að hefjast. Anna Pála Sverrisdóttir bendir í leiðara dagsins á það hvernig stjórnarandstöðunni mistókst að svipta andstæðinga og fylgismenn ESB tækifærinu til að ræða kosti og galla aðildar á málefnalegan hátt.  Svipur og flengingar eru líka eitthvað sem bara Sjálfstæðismanni dytti í hug að bendla við pólitíska umræðu.

Til [...]

Íslandssagan í hádeginu

Í dag verður borin upp á Alþingi tillaga um að Ísland sæki um aðild að ESB. Það verður eitt áhrifaríkasta augnablik Íslandssögunnar.
Alla tíð frá landnámi hafa Íslendingar líkt og aðrar þjóðir verið upp á önnur lönd komin um vörur. Sjálfstæðið á ekkert skylt með sjálfsþurftarbúskap heldur að geta komið að samskiptum við önnur lönd á [...]

Þjóðaratkvæðagreiðsla um samningsmarkmið?

Útspil andófsflokkanna á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að ESB er fremur ódýr leikur. Ljóst er að Samfylkingin sigraði kosningarnar í vor m.a. vegna skýrrar afstöðu sinnar fyrir aðild að ESB. Þá hafa fylgjendur ESB átt vinsældum að fagna í öðrum stjórnmálaflokkum, t.d. Bjarni Benediktsson sem varð formaður Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa lýst stuðningi við [...]

Sjóveiki í stórsjó

Það verður að vera hægt að treysta því að vel sé farið með fjármuni almennings í björgunaraðgerðum Ríkisins. Útskýringar viðskiptaráðherra á fjárútláti til Sjóvár eru ekki nándar nærri fullnægjandi. Fréttir af afdrifum Sjóvár voru nógu slæmar en að skattborgarar skuli borga undir liðið er sjóveikivaldandi.

Sjóvár havaríið er enn einn eitt hrunið á stoðum brenglaðs atvinnulífs [...]

Vinnum úr Icesave málinu í sameiningu

LEIÐARI Icesave málið varðar hag allra Íslendinga og úr því ættu allir stjórnmálamenn að reyna að greiða í sameiningu. Sjálfstæðisflokkurinn er í glerhúsi í þessu máli og er hollast að kasta ekki steinum.

LEIÐARI Alþingi glímir nú við eitt mesta leiðindamál Íslandssögunnar, að afgreiða samninga um innistæðutryggingar við Hollendinga og Breta vegna Icesave reikninga Landsbankans. Líklegt [...]

Hverfisskólana aftur í Reykjavík?

Skilaboðin úr framhaldsskólakerfinu eru misvísandi og benda til þess að nýja hugsun og nýjar áherslur þurfi við inntöku nemenda í skólana ef ekki eigi að auka á stéttaskiptinguna í kerfinu.

Inntaka nemenda í framhaldsskóla er orðin að hálfgerðum skrípaleik. Þegar fór að skýrast um daginn hvaða nemendur kæmust inn í hvaða skóla kom í ljós að [...]

Fordæmum ofstæki íranskra stjórnvalda

LEIÐARI Þrátt fyrir kreppu, skuldir og mótlæti mega Íslendingar vera þakklátir fyrir að búa í friðsælu lýðræðisþjóðfélagi, þar sem andóf er ekki bara leyfilegt, heldur nauðsynlegur hluti lýðræðislega ferlisins.

LEIÐARI Kaldrifjað morð á 26 ára gamalli íranskri stúlku, Neda Agha-Soltan, sem ekkert hafði unnið sér til saka annað en að mótmæla, hefur vakið óhug um allan [...]

Réttarríkið þarfnast nýsköpunar

Eitt allra mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinar nú er að fá almenning til að trúa að hann búi í réttarríki. Sú einfalda en mikilvæga hugmynd, réttarríkið, hefur því miður fengið að þola töluverða ágjöf. Hneykslismálin hrannast upp í vitund fólks því þótt spillingarbrim brjóti nú á landinu rótar brimið upp gömlum málum sem höfðu sokkið til botns, [...]

Ég fíla Borgarahreyfinguna á þingi

Jafnvel örlaði á að ég hugsaði: „Þið verðið að skilja að svona er þetta bara! Ég hef ekkert gaman af því sjálf heldur“ – í tón sem maður myndi kannski nota á barnið sitt sem neitar að vakna snemma til að mæta í skólann á svörtum morgni.
Leiðari dagsins er ekki skrifaður út af neinu sérstöku [...]

EES samningur og tvöföld atkvæðagreiðsla

Tíminn er naumur EES samningurinn er í uppnámi og dyr Evrópusambandsins gætu lokast.

Umræðan í samfélaginu snýst, eðlilega, mikið um Evrópu þingsályktun Össurar utanríkisráðherra. Alþingi hefur úrslitavald í málinu eins og öðrum málum en það sem er merkilegt við þessa tilhögun er að ríkisstjórnarflokkarnir eru ekki einhuga um niðurstöðuna. Samfylkingin þarf að treysta á stuðningin annara [...]

Sókn í jafnréttismálum

LEIÐARI Ef jafnréttissjónarmið verða ekki höfð að leiðarljósi í uppbyggingarstarfinu mun misréttið ná traustari fótfestu.
LEIÐARI Nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna bíða fjölmörg erfið verkefni í efnahags, atvinnu- og velferðarmálum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er þó kveðið á um fjöldann allan af öðrum málaflokkum sem ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir. Þetta eru málaflokkar sem skipta einnig [...]

Frjálslynd jafnaðarstefna Samfylkingarinnar

LEIÐARI Það er mikilvægt fyrir Samfylkinguna að varðveita eiginleika sína sem frjálslyndur jafnaðarflokkur, starfa í þágu frelsis og sanngirni svo lögmál markaðarins fái notið sín og styðji við markmið um mannvænt samfélag.

LEIÐARI Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar og Vinstri Grænna sem nú standa yfir eru vonandi fyrsta skrefið í átt að skynsamlegri uppbyggingu íslensks samfélags. Þessir tveir flokkar [...]

Evran eða landflótti ungs fólks

Leiðari Í dag verður ungt fólk að kjósa með nýrri hugsun. Það verður að gera sitt til þess að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu í kjölfar upplýstrar umræðu. Þess vegna kýs það Samfylkinguna.

Leiðari Ungt fólk er hreyfiafl í samfélaginu, boðberar breytinga. Þess vegna skiptir miklu máli að ungt fólk kjósi í dag. Framundan [...]

Um hvað er kosið?

Ungt fólk á að vera leiðandi afl í samfélaginu og boðberar breytinga. Þess vegna kýs það Samfylkinguna.

Það eru fjórir dagar í alþingiskosningar. Þær verða haldnar næsta laugardag og eðlilega eru átakalínurnar farnar að skýrast. Allt útlit er fyrir tímamótaniðurstöður. En um hvað kjósum við?
Í fyrsta lagi er kosið um hvort Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fái meirihluta [...]

Rétt kona á réttum stað

LEIÐARI Það skiptir ótrúlega miklu máli fyrir ungt fólk að vel verði staðið að endurreisn Íslands, þannig að samfélagið verði jafnara og réttlátara á eftir. Fáum, ef nokkrum, er betur til þess treystandi en Jóhönnu Sigurðardóttur.
LEIÐARI Þrjár góðar ástæður til að kjósa Jóhönnu Sigurðardóttur áfram sem forsætisráðherra:
1. Jafnara Ísland. Það skiptir ungt fólk ótrúlega miklu [...]

Göngum að samningsborði við Evrópumenn

LEIÐARI ESB er með flaggað í botn, gulstyrnt á bláum grunni. Ræðum við þetta germanska lið. Göngum að samningsborðinu með okkar kröfur, sem lúta alltaf að því að vernda auðlindir okkar og þjóð, mætum Evrópumönnum og sjáum hvort við verðum ekki með eitthvað gott í gangi.
Æ, þetta Evrópusamband. Og sá bleiki fíll sem það er. [...]

Byggjum á gegnsæi

Í þessum leiðara er farið gegnum þrjú atriði sem verður að hafa í huga við ákvarðanatöku um uppbyggingu íslensks samfélags. Gegnsæi og einfaldleiki er lykillinn að velgengni í starfi ríkisins, líkt og víðast hvar annars staðar.
Í endurreisnarstarfi Íslendinga verður að horfast í augu við gallana á samfélagi okkar. Þjóðarmein geta horfið manni sjónum í amstri [...]

Guðlaugur þó!

LEIÐARI Vandamálið er ekki fólkið sem framdi gjörninginn. Vandamálið er Sjálfstæðisstefnan, sem lítur á hverja krónu sem atkvæði og vill í síauknum mæli færa valdið frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum yfir til auðmanna og sérhagsmunahópa.
LEIÐARI Styrkjaskandall Sjálfstæðisflokksins verður óhugnanlegri að horfa á með hverjum deginum sem líður. Sífellt koma ný atriði upp á yfirborðið og æ [...]

Þingmenn, í gegn með lög til verndar konum!

LEIÐARI Mér finnst það ömurlegur málflutningur sem heyrst hefur að undanförnu, að frumvörpin um bann á vændiskaupum og við nektardansi séu gælumál sem eigi að víkja fyrir brýnni hagsmunum við að endurreisa efnahaginn.

LEIÐARI „Bann við kaupum á vændi og bann við klámstöðum eru litlar kröfur til að gera til stjórnarflokkanna en breyta miklu fyrir samfélagið. [...]

Engar töfralausnir mögulegar

LEIÐARI Mörgum þætti eflaust ljúft ef einhver fyndi töfralausn sem myndi leysa vandann okkar bara einn, tveir og tíu. En andar í gömlum lömpum og álfar sem veita manni óskir eru því miður bara til í ævintýrunum.

LEIÐARI Það er athyglisvert að fylgjast með stjórnmálaumræðum þessa dagana. Allir flokkar og frambjóðendur eru í kosningagírnum og [...]

Þetta finnst mér ekki allt í lagi

LEIÐARI Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í 7. apríl sagði frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið 30 milljónir frá FL Group. Greiðslan fór í gegn nokkrum dögum áður en lög voru sett um 300.000 króna hámarksgreiðslu fyrirtækis til stjórnmálaflokks.

LEIÐARI Ég veit ekki hvar á að hefja leika. Á að byrja á því að tækla málið [...]

Velferðarpartý fyrir kosningar

LEIÐARI Stuðningur samfélagsins við börn og barnafjölskyldur hefur aukist með aðgerðaáætlun um málefni barna. Persónuafsláttur, barnabætur og vaxtabætur hafa verið hækkaðar en það kemur ungu fólki og hinum efnaminni sérstaklega vel.
LEIÐARI Allir flokkar vilja verja velferðina, samkvæmt Morgunblaðinu í dag. Og mogginn lýgur auðvitað aldrei. Það er líka ekkert nýtt að boðað sé til velferðarpartýs [...]

Einangrun eða ESB

LEIÐARI Í mínum huga er svarið auðvelt við eigum að vera virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu. Ungt fólk á Íslandi verður að hafa sömu tækifæri og jafnaldrar þeirra í nágranna löndunum. Þess vegna verður ungt fólk að kjósa Samfylkinguna svo að farið verði í aðildarviðræður við ESB.

LEIÐARI Íslendingar eru að fara inn í mikilvægar kosningar. Sennilega [...]

Sumarannir eru málið

LEIÐARI Þúsundir stúdenta sjá fram á atvinnuleysi í sumar. Það er grafalvarleg staða fyrir fólk sem hefur takmarkaðan rétt á atvinnuleysisbótum og fær enga framfærslu frá LÍN yfir sumartímann.LEIÐARI Þúsundir stúdenta sjá fram á atvinnuleysi í sumar. Það er grafalvarleg staða fyrir fólk sem hefur takmarkaðan rétt á atvinnuleysisbótum og fær enga framfærslu frá LÍN [...]

Heil sé þér, íslensk kvikmyndagerð

LEIÐARI Ég er massíf áhugakona um íslenskar kvikmyndir. Ég kann utan að: Stellu í orlofi, Með allt á hreinu, Karlakórinn Heklu og síðan mjög mörg kvót úr Sódómu.

LEIÐARI Ég er massíf áhugakona um íslenskar kvikmyndir. Ég kann utan að: Stellu í orlofi, Með allt á hreinu, Karlakórinn Heklu og síðan mjög mörg kvót úr Sódómu. [...]

Í la-la landi

LEIÐARI Það er einfaldlega staðreynd að við getum ekki búið við allt þrennt; efnahagslegt öryggi, frjáls utanríkisviðskipti og íslensku krónuna.

LEIÐARI Á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina var bryddað upp á þeirri nýbreytni að fá óháða sérfræðinga á málstofur um ákveðin samfélagsmál. Ein málstofan bar titilinn “Lærdómar af hruninu” og fluttu þar þrír framsögumenn erindi; Jón Ólafsson [...]

Tökum þátt í að móta framtíð Íslands

LEIÐARI Framtíð Íslands eftir hrunið er óljós en við getum haft mikil áhrif á hana ef við beitum okkur. „Ef einstaklingurinn er virkur verður fjöldinn okkar styrkur og við gerum ótal breytingar.”
LEIÐARI Framtíð Íslands eftir hrunið er óljós en við getum haft mikil áhrif á hana ef við beitum okkur. „Ef einstaklingurinn er virkur verður fjöldinn [...]

Fjórar ástæður fyrir því að ungt fólk ætti að vilja ganga í Evrópusambandið

LEIÐARI Íslendingar eru Evrópubúar og eiga samleið með Evrópu. Við deilum sögu, menningu og gildum með Evrópu.
LEIÐARI Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um Evrópusambandið og fólk hefur skiptar skoðanir á því hvort Ísland eigi að sækja um aðild að sambandinu eða ekki. Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að ungt fólk á Íslandi ætti [...]

Velferð í kreppu – hverjum er hægt að treysta?

LEIÐARI Þegar kreppir að og þarf að spara er alltaf freistandi að grípa til niðurskurðar í velferðarmálum. Það er samt ekkert þar með sagt að það sé góð hugmynd.

LEIÐARI Þegar kreppir að og þarf að spara er alltaf freistandi að grípa til niðurskurðar í velferðarmálum. Það er samt ekkert þar með sagt að það sé [...]

Sögulegt

LEIÐARI Merkilegt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur mælst í hverri einustu könnun, sem birst hefur á valdatíma hennar, með hreinan meirihluta á þingi.
LEIÐARI Merkilegt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur mælst í hverri einustu könnun, sem birst hefur á valdatíma hennar, með hreinan meirihluta á þingi. Þá er mér ekki síður merkilegt að þessi sama minnihlutastjórn skuli mælast [...]

Kosningapakkar sem geta aldrei orðið

LEIÐARI Orðatiltækið korter í kosningar er eitthvað svo útjaskað en þó er það nákvæmlega það orðatiltæki sem hér þarf að nota. Það korter í kosningar sem nú er um ritað tengist gylliboðum og trixum stjórnmálaflokka rétt fyrir kosningar sem í ár birtist í formi 20% niðurfellingar á skuldum landsmanna og fyrirtækja.
LEIÐARI Orðatiltækið korter í kosningar [...]

Þrennt sem hræðir íhaldið

LEIÐARI Núverandi ríkisstjórn er aflmikil vél sem gerir hvað hún getur til að stokka upp. En það er erfitt að snúa ryðguðu drifskafti stjórnsýslunnar.
LEIÐARI Núverandi ríkisstjórn er aflmikil vél sem gerir hvað hún getur til að stokka upp. En það er erfitt að snúa ryðguðu drifskafti stjórnsýslunnar. S.l. tvo áratugi hefur Íhaldið komið fyrir [...]

Grundvallaratriðið er að halda fólki í vinnu

LEIÐARI Íslenskir kjósendur hafa nú uppgötvað að það er ekki nóg að halda að öll vandamál leysist af sjálfu sér/markaðurinn leysi þau. Það þarf líka pólitískar lausnir.
Meðan við troðum marvaðann ofan í þeim drullupytti sem nýfrjálshyggjan og sextán ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins kom okkur í, skiptir mestu máli að við leggjum allt á okkur til að [...]

Upp úr skítnum

LEIÐARI Glataðir atburðir haustsins hafa auðvitað skilið okkur eftir í djúpum skít. Blankheit og dýrtíð um óákveðinn tíma – jafnvel ofan á atvinnumissi og óyfirstíganlegar afborganir af lánum – valda því skiljanlega að fjöldi fólks íhugar að flytja til útlanda. Sérstaklega ungt fólk.
LEIÐARI Glataðir atburðir haustsins hafa auðvitað skilið okkur eftir í djúpum skít. Blankheit [...]

Þrotabú frjálshyggjunnar

LEIÐARI Misskiptingin jókst gríðarlega á Íslandi í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Atkvæði greidd þessum flokkum gætu orðið til þess að ballið byrjaði á nýjan leik.
Á 12 ára ferli sínum í ríkisstjórn tókst Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki að gera Ísland að tilraunastofu fyrir glæfralega frjálshyggju í efnahagsmálum. Þetta er niðurstaða sem Stefán Ólafsson prófessor kynnti á [...]

Nýtt upphaf …án hans

LEIÐARI Nú er Davíð formlega farinn. Rúinn trausti þjóðar og afleiðingin á ruslahaugum sögunnar. Davíð sem hefur stjórnað öllu síðan 1991 er hættur, vonandi „for gúdd“…

LEIÐARI Þetta er búið að vera ögn súrrealísk byrjun á degi. Morgunfúlindi mín tóku skjótan enda þegar ég rak augun í könnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Vinstri-stjórnin sem nú hefur [...]

Tveir fyrir einn tilboð

LEIÐARI … heldur minnir okkur á óþægilega staðreynd sem allir íslenskir kjósendur þurfa að hafa í huga fyrir 25. apríl: Þau sem kjósa Framsóknarflokkinn hætta á að við Íslendingar fáum aftur yfir okkur sömu blágrænu ríkisstjórnina og eyðilagði Ísland. 
LEIÐARI Klofningur Framsóknarmanna um Seðlabankafrumvarpið er ekki bara vandræðalegur fyrir Framsókn, heldur minnir okkur á óþægilega [...]

Ungt fólk og kosningarnar

LEIÐARI Þessar kosningar snúast um grundvöll íslensks þjóðfélags.  Þessar kosningar snúast um framtíðina. Þessar kosningar snúast um ungt fólk. Sú spurning sem stjórnmálamenn þurfa að svara í þessari kosningabaráttu er einföld. Hvernig eigum við að fá ungt fólk til að búa á Íslandi?

LEIÐARI Þann 25. apríl verður kosið til Alþingis.  Í þessum kosningum verður [...]

Karlakjör á Alþingi

LEIÐARI … en staðreyndin er sú að eftir því sem prófkjörin eru opnari (séu þau á annað borð haldin), þeim mun lakari getur hlutur kvenna orðið. Leiða má líkur að því að slíkt muni endurspeglast í persónukjörum til Alþingis.

LEIÐARI Sá fjöldi fólks sem þegar hefur tilkynnt þátttöku sína í væntanlegum prófkjörum nægir til að [...]

Loksins

LEIÐARI Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur nú lagt fram frumvarp sem mun binda enda á það óréttlæti sem eftirlaunalögin eru.

Alþingi Íslendinga samþykkti hin alræmdu eftirlaunalög árið 2003. Þessi lög kveða á um að þingmenn, ráðherrar, forseti og hæstaréttardómarar hljóti eftirlaunagreiðslur sem eru langt um hærri og í engu samræmi við þær sem aðrir opinberir starfsmenn fá. [...]

Opnanlegt er samfélagið ekki opið

LEIÐARI Eitt af grundvallaratriðum jafnaðarstefnunnar er opið samfélag. Opið samfélag þýðir að allir borgarar hafi jafnan aðgang að stofnunum samfélagsins. Samfylkingin verður að muna þetta í öllu sínu starfi í ríki, sveit og borg.

LEIÐARI Eitt af grundvallaratriðum jafnaðarstefnunnar er opið samfélag. Opið samfélag þýðir að allir borgarar hafi jafnan aðgang að stofnunum samfélagsins. Samfylkingin verður [...]

Þegar öllu er á botninn hvolft ….

LEIÐARI „Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið,“ sögðu Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir okkur vel tönuð og skælbrosandi fyrir síðustu kosningar. Síðan þá hefur allt breyst. Við höfum verið minnt mjög óþyrmilega á að efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins var aldrei traust og hefur stefnt velferð okkar allra í mikla hættu.LEIÐARI [...]

Atvinnuleysi og menntun

Vinnumálastofnun birti í dag tölur um stöðuna á vinnumarkaði. Atvinnuleysi í janúar var 6.6% og spáir stofnunin því að atvinnuleysi verði hér orðið 8,5% í lok febrúar.

Í skýrslunni segir jafnframt að fjórðungur allra atvinnulausra er á aldrinum 16-24 ára. Það er ljóst að efnahagsþrengingarnar eru að koma mjög hart niður á ungu fólki. Þetta er sá hópur sem er að reyna að mennta sig, brauðfæða og koma undir sér húsnæði.

Margir námsmenn hafa þurft að vinna hlutastörf samhliða námi, þar sem framfærsla Lánasjóðsins hefur ekki dugað fyrir brýnustu nauðsynjum. Um 17% prósent atvinnulausra voru skráðir í hlutastörf. Að óbreyttu er ekki er að vænta auknu framboði á hlutastörfum í náinni framtíð.

Davíð er stíflan í kransæð þjóðarinnar

Formaður bankastjórnar Seðlabankans, Davíð Oddsson, hefur iðulega hleypt öllu í bál og brand með ummælum sínum, í stað þess að lægja öldur og stuðla að stöðugleika eins og seðlabankastjórar eiga að gera. Hann situr nú sem fastast og kemur í veg fyrir löngu tímabærar umbætur sem ekki verður beðið eftir mikið lengur.