Vegna umfjöllunar um ályktun Ungra jafnaðarmanna

Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum um ályktun Ungra jafnaðarmanna um Landsdómsmálið sem miðstjórn samtakanna sendi frá sér á sunnudagskvöld þykir okkur ástæða til að koma eftirfarandi á framfæri.

Ungir jafnaðamenn lýsa vantrausti á forseta Alþingis.

Ungir jafnaðarmenn telja að málshöfðunin gegn Geir H. Haarde sé stjórnskipulega í réttum farvegi og Landsdómur hefur metið meiginhluta ákærunnar tæka til efnislegrar meðferðar.

Besta Reykjavík

Þegar fyrsta fjárhagsáætlun Samfylkingar og Besta flokks kom út fyrir einu ár var staðan erfið.

HJÁLPUM NORÐMÖNNUM!

Ungir jafnaðarmenn hafa miklar áhyggjur af smjörskortinum sem upp er kominn í Noregi.

Declaration on Palestine

We, the Young Social Democrats of Iceland, are very proud to announce that today the Icelandic Parliament approved a resolution about a sovereign and independent Palestine.

Ályktun Ungra jafnaðarmanna um sjálfstæði Palestínu

Ungir jafnaðarmenn fagna því að Alþingi hafi samþykkt þingsálykunartillögu utanríkisráðherra, þess efnis að Íslendingar viðurkenni sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Nú eru Íslendingar komnir í hóp þeirra 128 ríkja sem hafa á undaförnum 23. árum viðurkennt sjálfstæði og fullveldi Palestínu.
Það var á þessum degi árið 1947 að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þess efnis að stofnuð [...]

Ungir jafnaðarmenn ávíta vinnubrögð við sjávarútvegsráðherra.

Miðstjórn Ungra jafnaðarmanna skora á ríkisstjórnina og þingflokka ríkistjórnarflokkana til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ná fram nauðsynlegum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ef ráðherra málaflokksins vinnur ekki með þeim í þeirri vegferð, þá verða flokkarnir að finna nýjan ráðherra til að fylgja málinu eftir.
Ungir jafnaðarmenn ávíta vinnubrögð Jóns Bjarnasonar, landbúnaðar- og [...]

Ályktun Hallveigar um kynjafræði

Hallveig Ungir Jafnaðarmenn í Reykjavík vill að kynjafræði verði gerð að skylduáfanga á öllum brautum framhaldsskóla.
Í kynjafræði fá nemendur tækifæri til að horfa gagnrýnum augum á fyrirframgefin viðmið í samfélaginu og sjá hvað hallar mikið á konur og minnihlutahópa. Það myndi hjálpa mikið við að berjast gegn því óréttlæti sem konur og hinsegin fólk eru [...]

Ályktun Ungra Jafnaðarmanna vegna Dirty Night

Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir ánægju sinni með ákvörðun Jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar um að leggja fram kæru á hendur skemmtanahaldara Players og umboðsskrifstofunni agent.is vegna Dirty night sem fram fór á laugardagskvöldið síðasta. Þá harma Ungir jafnaðarmenn jafnframt þá miklu auglýsingu sem þessi viðburður hefur fengið í fjölmiðlum. Viðburðir af þessu tagi ýta undir kynjaðar [...]

Hallveig hvetur Menntamálaráðherra til að leita lausna í máli Kvikmyndaskólans

Hallveig, félag Ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík, telur það mikil vonbrigði að ekki hafi verið aukið við fjárframlög til Kvikmyndaskóla Íslands.

Sjálfstætt ríki Palestínu

Ungir jafnaðarmenn hvetja íslensk stjórnvöld til að hafa frumkvæði að því að viðurkenna sjálfstætt fullvalda ríki Palestínu innan landamæra frá 4. júní 1967.

Hallveig ályktar gegn lækkun útsvars

Hallveig Félag Ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík telur að þrátt fyrir að mikill afgangur sé af rekstri Reykjavíkurborgar árið 2010 eigi ekki að fara í lækkanir á útsvari.

Lítum fram á veg

Meirihluti kjósenda hafnaði samningaleiðinni í IceSave deilunni á laugardaginn. Nú þarf þjóðin að standa saman í þeim erfiðu málum sem blasa við.

Ungir jafnaðarmenn vilja samþykkja lög um Icesave samningana

Forseti Íslands hefur synjað lögum um staðfestingu Icesave samningana. Mikill meirihluti þingmanna greiddu lögunum atkvæði sitt því þeir töldu þá mjög mikilvæga til áframhaldandi uppbyggingu íslensks efnahagslífs.

Of langt gengið í niðurskurði í tónlistarnámi

Aðildarfélag Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, Hallveig, telja of langt gengið í niðurskurði borgarinnar í tónlistarnámi.

Uj styður stjórnlagaþing

Ungir jafnaðarmenn vilja að stjórnlagaþing sé haldið og styðjum við ríkisstjórnina í því að halda því til streitu. Stjórnlagaþing er hluti af ósk þjóðarinnar um endurskoðun stjórnarskráarinnar og ber okkur skylda að verða við þeirri ósk. Við hörmum hvernig staðið var að kosningum til stjórnlagaþings en bendum jafnframt á að ákvörðun Hæstaréttar er umdeilanleg. Einnig [...]

Sameinumst, hjálpum þeim

Ungir jafnaðarmenn skora á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína og hækka fjármagn til þróunarhjálpar. Ríkistjórnin á þrátt fyrir slæmt árferði að skipa sér í fremstu röð þjóða sem taka þátt í að gera heiminn að betri stað í dag en hann var í gær og setja öðrum þjóðum gott fordæmi í þeim efnum.
Hornsteinn félagshyggjunnar felst [...]

Umsögn UJ: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar

Ungir Jafnaðarmenn fagna þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar.

Ungir Jafnaðarmenn krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar

Ungir Jafnaðarmenn bregðast ókvæða við þeim hvatvísu ummælum Jóns Bjarnasonar Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra

Ungir jafnaðarmenn hvetja ríkisstjórn Íslands til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael

Ungir jafnaðarmenn hvetja ríkisstjórn Íslands til þess að taka af skarið og slíta stjórnmálasamstarfi við Ísrael tafarlaust.

Ungir jafnaðarmenn fagna banni við nektardansi

Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir ánægju með bann við nektardansi sem Alþingi samþykkti þriðjudaginn 23. mars. Ungir jafnaðarmenn telja mikil tímamót hafa átt sér stað en lengi hefur verið vitað að nektardansstaðir eru gróðrarstía fyrir klámvæðingu og kynbundið ofbeldi.

Ungir jafnaðarmenn hvetja til lausnar ICESAVE-málsins

Ályktun ICESAVE-málið verður einfaldlega að leysa og Ungir jafnaðarmenn hvetja því til lausnar málsins sem fyrst.
Ályktun Ungir jafnaðarmenn benda á þann kostnað sem hlotist hefur af frestun ICESAVE-málsins frá áramótum og ekki sér enn fyrir endann á. Þessi kostnaður telur milljarða króna á meðan áætlun stjórnvalda um endurreisn efnahagslífsins er haldið í gíslingu flokkspólitískra deilna.
Seinkun [...]

Ungir jafnaðarmenn fagna hugmyndum um rannsókn á stuðningi Íslands við innrásina í Írak 2003

Ungir jafnaðarmenn fagna þeirri hugmynd að sett verði á fót rannsóknarnefnd sem verði falið að rannsaka aðdraganda stuðningsyfirlýsingar Íslands við innrásina í Írak árið 2003.
Ungir jafnaðarmenn fagna þeirri hugmynd, sem komið hefur fram í máli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og Ögmundar Jónassonar, að sett verði á fót rannsóknarnefnd sem verði falið að rannsaka aðdraganda stuðningsyfirlýsingar Íslands [...]

Ungir jafnaðarmenn fagna lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Ályktun Ungir jafnaðarmenn fagna lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja.

Ályktun Ungir jafnaðarmenn fagna lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.
Síðastliðið ár hafa heimilin og fyrirtækin í landinu háð blóðuga baráttu við að halda haus í erfiðu efnahagsumhverfi sem er afsprengi misheppnaðar einkavæðingar og efnahagsstjórnar Sjálfstæðisflokks og [...]

Ungir jafnaðarmenn harma þá ákvörðun stjórnvalda að senda hælisleitendur til Grikklands.

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn harma þá ákvörðun stjórnvalda að senda fjóra hælisleitendur, þar á meðal dreng fæddan árið 1990 og mann sem hefur verið undir læknishendi vegna mikils andlegs álags, aftur til Grikklands.

ÁLYKTUN Samkvæmt Dyflinnar-reglugerðinni er íslenskum stjórnvöldum heimilt að senda hælisleitendur til þeirra ríkja sem þeir koma fyrst til, í þessum tilfellum Grikklands. Hins vegar er [...]

Ályktanir landsþings UJ

Hægt er að nálgast ályktanir landsþings UJ, sem fram fór helgina 3-4 október, með því að smella hér.

Stjórnmálaályktun landsþings Ungra jafnaðarmanna 2009

Stjórnmálaályktun af Landsþingi UJ.

Ný tækifæri á jöfnum grunni
Ýtið á lesa meira til að sjá stjórnmálaályktunina.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tekur við slæmu búi. Frjálshyggjutilraun gróðahyggjuafla undanfarinna ár endaði með ósköpum. Bankarnir voru einkavæddir í hendur útvaldra og skattkerfinu var skipulega breytt til að hygla þeim ríku á kostnað þeirra sem minnst hafa milli handanna. Yfirgangur  [...]

Ungir jafnaðarmenn þakka breytingar á LÍN

Ungir jafnaðarmenn fagna þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Breytingarnar tryggja meira jafnrétti til náms en áður og má þakka ríkisstjórn Samfylkingar og VG, með félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra í fararbroddi.
Ályktunina má lesa í heild sinni með því að smella á meira.

Ungir jafnaðarmenn fagna þeim breytingum sem nú [...]

Ný stjórn Korku kýs ekki eins og foreldrar sínir

Stefán Rafn Sigurbjörnsson var kjörinn formaður Korku, ungs jafnaðarfólks í Garðabæ og á Álftanesi, á aðalfundi félagsins í gær. Í ályktun fundarins er nýrri ríkisstjórn fagnað og hún hvatt til dáða.
Ný stjórn Korku, ungs jafnaðarfólks í Garðabæ og á Álftanesi, var kjörin á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Nýr formaður var kjörinn Stefán [...]

Ungir jafnaðarmenn fagna aðildarumsókn

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna því að Alþingi hafi samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ungir jafnaðarmenn hafa frá stofnun árið 1999 verið fylgjandi umsókn um aðild að ESB, meira að segja áður en Samfylkingin tók upp sömu stefnu fjórum árum síðar. Þar áður hafði Samband ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfing Alþýðuflokksins, haldið málstað Evrópusinna á [...]

UJ fordæma ofbeldið í Íran

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fordæma grimmd íranskra stjórnvalda í garð almennings. Fólk um allt landið, sem að undanförnu hefur mótmælt meintum kosningasvikum forsetans Mahmoud Ahmadinejad, sætir harðræði hersveita stjórnvalda, sem hafa bannað mótmæli, lokað á fréttaflutning og beitt gengdarlausu ofbeldi. Að minnsta kosti nítján manns hafa dáið í óeirðunum og mörg hundruð hafa verið handteknir.
Ungir [...]

UJ krefjast hærri námslána

Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að námslán fyrir næsta skólaár hækki. Lánin eru lág fyrir og bólgnuðu ekki út í góðærinu. Núverandi námslánakerfi gerir að verkum að margir stúdentar hafa treyst á vinnu með skóla eða hjálp frá fjölskyldum til að eiga fyrir salti í grautinn. Á tímum atvinnuleysis er ekki lengur hægt að treysta á [...]

Salka fagnar nýjum bæjarstjóra

Þriðjudaginn 9. júní tók oddviti Samfylkingingarinnar á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, við starfi bæjarstjóra Akureyrarkaupstaðar.  Þessi bæjarstjóraskipti eru hluti af farsælu meirihlutasamstarfi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins þar sem samið var um að Samfylkingin fengi bæjarstjórastólinn síðasta árið.  Þetta er í fyrsta skipti sem Samfylkingin hefur bæjarstjóra á Akureyri innan sinna raða og er þetta stór áfangi [...]

Samfylkingunni ber skylda til að tryggja að Ísland sæki um aðild

Ályktun Ungir jafnaðarmenn vilja að Samfylkingin og Vinstri græn myndi nýja ríkisstjórn. Til að svo megi verða þurfa flokkarnir að færa valdið til þjóðarinnar.

Ályktun Ungir jafnaðarmenn fagna sigri jafnaðarstefnunnar í nýafstöðnum kosningum. Nú er hægt að mynda raunverulega félagshyggju- og velferðarstjórn. Samfylkingin er stærsti flokkur landsins. Hún kemur til með að leika lykilhlutverk við uppbyggingu [...]

Ungir jafnaðarmenn skora á stjórnvöld að tryggja sumarannir af því það er ódýrara

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, taka hástöfum undir þá kröfu stúdenta að háskólar landsins opni dyr sínar til að mæta atvinnuleysi námsmanna í sumar! Framhaldsskólar þurfa sömuleiðis að koma til móts við nemendur sína nú meðan tímabundið atvinnuleysi er mest. UJ vekja athygli á að hið opinbera tapar miklum peningum á að bregðast ekki við [...]

UJ þakka Ingibjörgu Sólrúnu fyrir störf hennar

Ungir jafnaðarmenn senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sínar allra bestu og hlýjustu kveðjur fyrir störf  í þágu jafnaðarstefnunnar. Ingibjörg hefur hvergi dregið af sér í fjölda ára og framlag hennar til íslensks samfélags er ómetanlegt.
Ungir jafnaðarmenn senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sínar allra bestu og hlýjustu kveðjur fyrir störf  í þágu jafnaðarstefnunnar. Ingibjörg hefur hvergi dregið af [...]

UJ lýsa stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann Samfylkingarinnar. Tilefni þessarar yfirlýsingar eru orð Jóns Baldvins Hannibalssonar um að hún ætti ekki að gefa kost á sér áfram. Það er rétt hjá Ingibjörgu að Samfylkingin axlaði þá pólitísku ábyrgð sem Sjálfstæðisflokkurinn neitaði alfarið að gera í fyrrum ríkisstjórn.

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn [...]

Ungir jafnaðarmenn vilja prófkjör hjá Samfylkingunni

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn fagna því að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafi nú ákveðið kjördag. Undanfarnar vikur og mánuði hefur verulega dregið úr trausti almennings til Alþingis og stjórnvalda og nauðsynlegt að nýtt Alþingi geti, með skýrt umboð frá almenningi, ráðist í uppbyggingu á íslensku efnahagslífi.
ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn fagna því að ný ríkisstjórn [...]

Ungir jafnaðarmenn þakka Ágústi Ólafi vel unnin störf

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn þakka Ágústi Ólafi Ágústssyni, varaformanni Samfylkingarinnar og félaga í UJ, vel unnin störf á Alþingi og innan flokksins. Ágúst hefur tilkynnt að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri til Alþingis eða til varaformennsku í flokknum

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn þakka Ágústi Ólafi Ágústssyni, varaformanni Samfylkingarinnar og félaga í UJ, vel unnin störf á Alþingi [...]

UJ krefjast kosninga, aðildarviðræðna og vinstristjórnar

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að sitjandi ríkisstjórn boði til kosninga í vor! Ef hún getur ekki orðið við þeirri eðlilegu kröfu þá á Samfylkingin að slíta stjórnarsamstarfinu.

ÁLYKTUN Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að sitjandi ríkisstjórn boði til kosninga í vor! Hvorki Alþingi né ríkisstjórnin hefur lýðræðislegt umboð lengur, til þess að taka þær erfiðu [...]

[Ályktun] Stöðvið blóðbaðið á Gaza!

Ungir jafnaðarmenn taka undir með utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Svíþjóðar og fordæma innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. UJ hvetja Íslendinga til að senda sendiherra Ísraels áskorun um að stöðva blóðbaðið.

Ungir jafnaðarmenn taka undir með utanríkisráðherrum Íslands, Noregs og Svíþjóðar og fordæma innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. Á örfáum dögum hafa hundruð Palestínumanna látið lífið í loftárásum [...]

[Ályktun] UJ fordæmir grófan niðurskurð

Ungir jafnaðarmenn skora því að Alþingi, og sérstaklega þingmenn Samfylkingarinnar, að koma í veg fyrir að þessar slæmu tillögur verði að lögum.

Ungir jafnaðarmenn fordæma fyrirhugaðan niðurskurð til Háskóla Íslands og námsmanna. Í fjárlögum sem rædd eru nú á Alþingi liggja fyrir tillögur frá menntamálaráðuneytinu um 3% flatan niðurskurð á háskóla- og framhaldsskólastiginu. Ofan á það [...]

[Ályktun] Jafnaðarstjórn sem stefnir á Evrópu

UJ vilja jafnaðarstjórn sem sækir um aðild að ESB. UJ telja ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt ef ekki komi til stefnubreytingar Sjálfstæðisflokks í Evrópumálum. Þá ítreka UJ skilyrðislausa kröfu um uppstokkun innan ríkisstjórnarinnar til að endurvekja traust á störfum hennar. Sama gildir um Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið.

UJ vilja jafnaðarstjórn sem sækir um aðild að ESB. UJ telja ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt [...]

[Ályktun] Kosningar og innganga í ESB

Ungir jafnaðarmenn kalla eftir kosningum á fyrri hluta næsta árs og fullyrða að innganga í Evrópusambandið sé forsenda þess að vel takist til við uppbyggingu landsins. Þá myndi afdráttarlaus yfirlýsing um að Íslendingar stefndu að upptöku evru auka líkur á að vel tækist til við fleytingu krónunnar.

Ungir jafnaðarmenn vilja að kosið verði til Alþingis á [...]

[Ályktun] Höfnum alfarið upptöku norskrar krónu

,,Á undanförnum dögum hefur verið mikið talað um að Íslendingar ættu að taka upp norska krónu í stað hinnar íslensku. Stjórnarandstaðan hefur ítrekað bent á að þessa leið, líklega vegna þess að hún hefur ekki pólitískt þor til að viðurkenna að evran er framtíðarmynt Íslands. Ungir jafnaðarmenn telja hugmyndir um upptöku norskra krónu fráleitar. Skemmst [...]

[Ályktun] Fögnum aðgerðum til að styrkja stöðu námsmanna

,,Ungir jafnaðarmenn fagna tímabærum aðgerðum til að styrkja stöðu lánþega LÍN sem menntamálaráðuneytið kynnti í dag. Með þessum aðgerðum er komið að einhverju leyti til móts við námsmenn, hvort sem þeir eru erlendis eða á Íslandi, og þá sem eru að greiða af námslánum.”
Ungir jafnaðarmenn fagna tímabærum aðgerðum til að styrkja stöðu lánþega LÍN sem [...]

[Ályktun] Yfirvofandi flótti ungs fólks

,,Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórnin stefni að inngöngu í Evrópusambandið, það er lykillinn að endurreisn Íslands. Skorað er á alþingismenn – sama í hvaða flokki þeir eru – og allan almenning að tala fyrir þessum sjónarmiðum. Sérstaklega er skorað á aðrar ungliðahreyfingar að taka þessari áskorun.”
Yfirvofandi flótti ungs fólks – UJ krefst aðgerða

Ísland hefur [...]

[Ályktun] Réttlát námslán

Ungir jafnaðarmenn krefjast réttlátra námslána á erfiðum tímum. Ríkisstjórnin verður að gera námsmönnum erlendis kleyft að kaupa gjaldeyri og breyta reglum LÍN þannig að lán séu greidd út mánaðarlega. Þá verður tryggja að lánin haldi í við verðbólguna.
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórn og yfirmenn banka landsins geri námsmönnum og öðrum sem staddir eru [...]

[Ályktun] Bjartur krefst samninga við ljósmæður

Bjartur – ungir jafnaðarmenn á Seltjarnarnesi skora á stjórnvöld að efna stjórnarsáttmálann og skera upp herör gegn kynbundnum launamun, sem jókst um þrjú prósent milli áranna 2007 og 2008 meðal ríkisstarfsmanna.Bjartur – ungir jafnaðarmenn á Seltjarnarnesi skora á stjórnvöld að efna stjórnarsáttmálann og skera upp herör gegn kynbundnum launamun, sem jókst um þrjú prósent milli [...]

[Ályktun] UJ vill fresta sjúkratryggingunum

Ungir jafnaðarmenn lýsa undrun sinni yfir því að þingflokkur Samfylkingarinnar ætli að stuðla að því að frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar verði samþykkt óbreytt á yfirstandandi þingi.Ungir jafnaðarmenn lýsa undrun sinni yfir því að þingflokkur Samfylkingarinnar ætli að stuðla að því að frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar verði samþykkt óbreytt á yfirstandandi þingi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að [...]