Endurnýjun og einföldun velferðarkerfisins
Við Íslendingar höfum borið gæfu til þess að standa fyrir öflugu velferðarkerfi. Með velferðarkerfinu hefur verið stuðlað að jöfnun lífskjara og komið að mestu í veg fyrir mismunun á grundvelli efnahags hvað varðar aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu. Lagaleg staða kynjanna hefur verið jöfnuð, m.a. með lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Þá hefur stuðningur við [...]
Fjölgun öryrkja á Íslandi
Umræðan um öryrkja og fjölgun þeirra undanfarin ár hefur verið áberandi í kjölfar þess að skýrsla(1) Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns hagfræðistofnunar HÍ, kom nýlega út. Þar er bent á að öryrkjum hafi fjölgað úr 8.700 árið 1992 í um 13.800 árið 2004 (eða um 59%). Athygli vekur að fjölgunin er hlutfallslega mest hjá yngri öryrkjum [...]
Fordómar: umburðar- og virðingarleysi
Í vestrænum þjóðfélögum virðast fordómar og umburðarleysi gagnvart þeim sem eru öðruvísi, svo sem útlendingum og innflytjendum, koma sterkar upp á yfirborðið nú en fyrir nokkrum árum. Fordómar og tortryggni gagnvart múslimum hefur aukist, gyðingahatur virðist fara vaxandi til að mynda í Evrópu og öfgasinnuðum þjóðernisflokkum hefur vaxið ásmegin undanfarið eins og sést til að [...]
Í landi allsnægta
Í eigin sjálfsvorkunn yfir öllum þessum ákvörðunum og “vandamálum” fór ég aðeins að velta fyrir mér hvað flest okkar á Íslandi höfum það alveg sérdeilis og yfirgengilega gott. Ein birtingamynd þess er ,,jólagjöfin í ár” sem dynur á okkur í formi auglýsinga þessa dagana. Jólagjafirnar í ár eru sem sagt utanlandsferðir, plasmasjónvörp, ferðatölvur og heimabíó [...]
Skattaríkisstjórnin
Athyglisverðar upplýsingar komu fram nýverið á heimasíðu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD), www.oecd.org. Þar segir að mesta aukning á skattheimtu innan OECD sem hlutfall af landsframleiðslu á milli áranna 2002 og 2003 hafi verið á Íslandi. Á milli þessara ára jókst hún úr 38.1% í 40.3% af landsframleiðslu. Samkvæmt OECD var þetta hlutfall 31.8% árið [...]
Einkavæðing Símans
Jæja, þá er komið að því. Það á að fara að selja Símann. Fyrir þremur árum var tekin rétt ákvörðun um að fresta sölu Símans enda var netbólan fræga við það að springa og hlutabréfaverð tæknifyrirtækja hrundi. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn virðast sammála um það nú að selja Símann í heilu lagi; ekki á að skilja [...]
Hinsegin réttindi
Mikið lifandis ósköp er gott að vera Íslendingur. Rigningin og rokið er nú bara hjóm eitt miðað við það sem margir aðrir þurfa að glíma við. Mismunun, ofbeldi, ofsóknir og glæpir gagnvart samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og kynskiptingum fyrirfinnast til dæmis víða um heim samkvæmt Amnesty International. Þá er dauðarefsingum beitt gegn samkynhneigðum í Íran, Súdan, Pakistan, [...]
Hverjum gagnast landbúnaðarkerfið?
Margir í kringum mig falla í dá þegar minnst er á landbúnaðarmál. Sjálfum finnst mér þetta reyndar áhugaverður málaflokkur því svo margt er hægt að breyta og bæta. Nú þegar fjölmiðlafrumvarpið er í algleymingi er von mín að umfjöllun um landbúnaðarmál sé eins og ferskur vindur. Það má alltaf reyna. Margir í kringum mig [...]
Ýkt einstaklingshyggja
Menntun er bæði hagur einstaklingsins og alls samfélagsins. Hún er undirstaða framfara í landinu og stuðlar að auknum hagvexti. Með tilkomu upplýsingasamfélagsins og alþjóðavæðingarinnar verður menntun helsta vopnið í baráttunni við að auka velferð okkar og víðsýni. Við viljum því stuðla að háu menntunarstigi þjóðarinnar. Tekjumissir og aumingjaleg námslán hafa sem slík nógu letjandi áhrif [...]
