Öll él birtir upp um síðir
,,Nú verðum við öll að taka saman höndum og komast í gegnum þennan blindbyl því að lokum mun birta aftur til”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Fátt virðist ganga upp í efnahagslífi íslendinga, í raun gengur ekkert í hinum alþjóðlega fjármálaheimi. Bankar hafa ýmist farið í þrot eða sameinast öðrum bönkum. Seðlabankar [...]
Aukin lífsgæði með breyttu neyslumynstri
,,Fyrsta skrefið hjá okkur er þó að skoða neyslumynstrið okkar og skoða með gagnrýnum augum hvort að við forgangsröðum rétt”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Í síðasta ritstjórapistli spurði ég þeirrar spurningar hvernig best væri að mæla hagsæld. Ein af niðurstöðum mínum var að helsta verkefni íslenskra stjórnmála væri að ýta undir [...]
Hvernig er hagsæld mæld?
,,Lífsgæðakapphlaupið á ekki að snúast um að eiga flotta jeppa, falleg einbýlishús eða flatskjái. Það á að snúast um þær stærðir sem þjóðhagsreikningar ná ekki endilega til.” Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Sumt verðum við Íslendingar að hafa í huga hvort sem er í góðæri eða hællæri. Við megum alls ekki gleyma [...]
Skilvirk þróunarsamvinna
,,Skipulag þarf að vera í lagi til þess að aukið fjármagn nýtist sem best. Þrátt fyrir aukningu útgjalda til þróunarmála hafa þarfar skipulagsbreytingar ekki komið fram á sjónarsviðið”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri Politik.is í grein dagsins.
Umræðan um þróunarmál hér á landi hefur verið mjög athyglisverð svo vægt sé til orða tekið. Umræðan hefur fyrst [...]
Hvað er að frétta af…
,,Hins vegar hefur lítið sem ekkert heyrst um þetta frumvarp sem lagt var fram snemma í haust en mjög stutt er til þingloka”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Í byrjun haustþings lagði þingflokksformaður Samfylkingarinnar frumvarp um breytingu á lögum um dómstóla nr. 15/1998, en aðal breytingin á lögunum samkvæmt frumvarpinu yrðu [...]
Á að efla íbúalýðræði?
,,Nútíminn hefur kallað á aukna þátttöku almennings í ákvörðunartöku og því ættum við að setjast öll saman niður og ræða þessi mál af alvöru.”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Fyrr á öldum börðumst forfeður okkar með blóði, svita og tárum fyrir réttindum sem nútímafólk kallar lágmarksréttindi. Öll teljum við að [...]
Að víkja ekki frá sinni sannfæringu
,,Það að standa fast á sinni sannfæringu þó svo að hún sé ekki sú vinsælasta er gríðarlega erfitt en sú staðfesta er þó grundvöllur trúverðugleika”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins….
Eitt af því sem undirritaður hefur verið duglegur við að rita um er pólitískur þroski og hugrekki stjórnmálamanna. Ein af fyrstu greinum [...]
Hugleiðingar landsbyggðarmanns
,,Þar sem áætlanir stjórnvalda í byggðamálum hafa ekki hjálpað landsbyggðinni mikið undanfarin ár, er manni spurn hver lausnin sé, svo landsbyggðin geti staðið jafnfætis höfuðborgarsvæðinu?” Spyr Sölmundur Karl Pálsson …
Það kemur fyrir að maður heyrir orðið ,,landsbyggðarpakk”, og oftar en ekki í því samhengi að menn séu ósáttir við að þeir sem búa á [...]
Ég er jafnaðarmaður
,,Þingið var haldið síðastliðinn laugardag á Grand Hótel Reykjavík. Jafnaðarstefnan var einnig rædd í ljósi tveggja samtímamála, Evrópusambandið og málefni innflytjenda. Yfir hundrað manns sótti þingið, jafnt ungir jafnaðarmenn sem aldnir jafnaðarmenn. ”
[...]
Hvað er markmið stjórnmálanna?
,,Það er hlutverk okkar jafnaðarmanna að rífa íslensk stjórnmál upp á hærra plan, það verður erfitt, en þó ekki útilokað. Ef við höldum okkar striki og setjum málefni okkar á dagskrá, þá mun okkur vegna vel”. Segir Sölmundur Karl Pálsson í ritstjórnarpistli sínum.
[...]
Nauðsynlegar skipulagsbreytingar
,,Fyrsta skrefið okkar til að gera þróunaraðstoð okkar skilvirkari væri best að koma henni fyrir á einni hendi, og láta þannig tvíhliða og marghliða þróunaraðstoð vinna saman”. Segir Sölmundur Karl Pálsson í grein dagsins
Útgjöld til þróunaraðstoðar er alltaf að aukast, og málefni hennar alltaf [...]
Að muna eftir uppruna sínum
,,Það er hlutverk Samfylkingarinnar, hinum eina jafnaðarmannaflokki Íslands að gæta þess að þessi réttindi verði til staðar um ókomna tíð”. Segir Sölmundur Karl Pálsson í ritstjórnarpistli dagsins.
[...]
Að gera Seðlabankann sjálfstæðari
,,Ég hvet því alþingismenn til að skoða lög nr. 36 frá árinu 2001 í tilliti til skipan seðlabankastjóra, sem og skipun bankaráðs. Við verðum að gera Seðlabankann enn sjálfstæðari, til þess að ná betri árangri í efnahagsstjórn.” segir Sölmundur Karl Pálsson í ritstjórnarpistli dagsins Ein af lykilstofnunum í samfélagi okkar er Seðlabankinn. Hlutverk [...]
Draumaland fákeppninnar
,,Þar sem landið er auðugt af auðlindum, hugmyndin um að einungis fá fyrirtæki sé hentugasta fyrirkomulagið og eftirspurn Íslendinga óendanleg, hlýtur Ísland að kallast draumaland fákeppninnar, ekki satt?” spyr Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri Politik.is.
Markmið fyrirtækja er einfalt. Markmiðið er að [...]
Ber almenningur ábyrgð á ábyrgðarleysi stjórnmálamanna?
,,Það er nefnilega almenningur sem dregur línuna í sandinn, en ekki stjórnmálamennirnir”. Segir Sölmundur Karl Pálsson í ritstjórnarpistli dagsins.
[...]
Risasmá
,,Nú er því kominn tími til að sýna öðrum löndum meiri hjálpsemi en við höfum gert hingað til. Ég vil því hvetja utanríkisráðherra okkar að halda áfram að móta okkar eigin utanríkisstefnu, efla enn meir þróunaraðstoð. Stuðla að því að Ísland hjálpi Afríkuþjóðum að fá ódýrari lyf.” Segir Sölmundur Karl Pálsson stjórnarmaður í Ungum jafnaðarmönnum [...]
Að fylgja samtíðinni
,,Á þessum nýju tímum hafa fyrirtæki okkar aðlagast mjög vel, stærstu fyrirtækja herja á erlenda markaði og eru hætt að þurfa að treysta á hin litla íslenska markað. En þrátt fyrir að fyrirtæki hafi á undanförnum árum gerst alþjóðleg hafa sumir stjórnmálamenn ekki náð að fylgja fordæmi fyrirtækjanna að hugsa alþjóðlega. Þrátt fyrir breyttar aðstæður, [...]
Ertu maður eða mús?
,,En mér er þá spurn, hélt Jón Sigurðsson virkilega að það tæki nokkra mánuði að rífa flokkinn upp? Eða hefur honum ekki heldur dottið í hug að sýna það hugrekki að sitja áfram þrátt fyrir erfiðleika og sitja áfram sem formaður flokksins og rífa flokkinn upp?” Segir Sölmundur Karl Pálsson í grein dagsins.
[...]
Aukin vernd heimildarmanna
,,Á Íslandi í dag er mjög erfitt að láta upplýsingar til fjölmiðla, þar sem heimildarmenn fá litla sem enga vernd, og því lítill hvati til að upplýsa um meint brot stofnanna sem varða almannaheill. Það eru aðeins fáir sem búa yfir þeim styrk, að þora að láta fjölmiðla fá upplýsingar sem varða almannaheill, og þessir [...]
Millidómstig – Rétta lausnin?
,,Þjóðfélag okkar verður að geta treyst dómskerfinu, og það er grunnur hvers þjóðfélags að þjóðfélagsþegnar eigi rétt á sanngjarnri málsmeðferð, og ef lausnin er að stofna millidómstig þá eigum við að stofna nýtt dómsstig.” Segir Sölmundur Karl Pálsson í grein dagsins.
Það eru nokkrar grunnstofnanir í okkar samfélagi, og ein [...]
Nýjasta tíska
,,Fólki er tamt að fylgja tískunni, hvort sem er í hugsun, klæðaburði eða jafnvel í málfari. Þó svo að við vitum aldrei hver eigi upptökin að tískunni, þá fylgjum við henni, því við, viljum jú líkjast þeim sem okkur líkar vel við, eða lítum upp til. … Í dag sýnist mér að það að stofna [...]
Hugrekki er dyggð
”En auðvitað þarf flokkur að standa saman, sem er eðlilegt. En þegar hagsmunir þjóðarinnar eru í húfi, þá verða menn að sjálfssögðu að hugsa sig um, og við hljótum að gera þá kröfu á þingmenn okkar að hafa það þor að fylgja sinni eigin sannfæringu ef þeir halda að stefna flokksins fari á skjön við [...]
Að horfa fram á veginn
,,Ein ástæða fyrir þessum slysum er að fólk er ekki að aka eftir aðstæðum, önnur ástæðan er of hraður akstur, og þriðja ástæðan er að við hugsum jafnvel lítið um umferðaöryggi. Við getum talið upp óteljandi ástæður, og við getum ávallt rifist og rökrætt um ástæður slysa, en það að sjálfsögðu færir okkur ekki fórnarlömbin [...]
Trúfrelsi sem mannréttindi
,,Eitt skil ég ekki, af hverju er ekki löngu búið að aðskilja kirkju og ríki? Ef við viljum virða mannréttindi, verður að vera trúarbragðafrelsi, og eina aðferðin er að aðskilja ríki og kirkju. Síðan getur ríkið auðvitað styrkt evangeliska lútersku kirkjuna eftir aðskilnaðinn, en þá þarf ríkið auðvitað að greiða jafnt á milli trúfélaga,” segir [...]
Valddreifing
Sölmundur Karl Pálsson segir almenning þarf að hugsa um hvernig stjórnkerfið okkar eigi að virka. Sölmundur spyr hvort við viljum að völd safnist á fárrar hendur. Eins og margir gamlir hugsuðir töldu að félagslegur hreyfanleiki væri heilbrigður fyrir samfélag, og vildu þar með að valddreifing yrði nægileg til þess að ná félagslegum hreyfileika.
[...]
Nýtt framboð- ný lausn?
Sölmundur Karl Pálsson segir eina tilganginn við að stofna nýjan flokk er að þá eiga stofnendur flokkanna auðveldara að koma sínum einkahagsmunum á framfæri. En ef fólk er svona óánægt með störf ríkisstjórnarinnar og vilja fella hana er þá ekki betra að koma yfir til okkar í Samfylkingunna? Hjálpa frekar okkur að fella ríkisstjórninna heldur [...]
Galdramaðurinn Geir
Sölmundur Karl Pálsson fjallar um Haarde-leiðina sem gengur út á að slá á þenslu á aðeins þremur mánuðum. Þó svo að það séu kosningar næsta vor þá biður Sölmundur alla stjórnmálamenn í hvaða flokki sem er að láta af vonlausum loforðum í von um atkvæði. Það má segja það að við eigum galdramann, já [...]
Samvinna – ábyrg efnahagsstjórn er forsenda stöðugleika
Sölmundur Karl Pálsson, ritstjóri UJA.is, skrifar um efnahagsmál og ákvörðun Seðlabanka Íslands um hækkun stýrivaxta fyrir helgi. Sölmundur vonar að næsta ríkisstjórn hafa meira samstarf við sveitarfélög og Seðlabanka Íslands um efnahagsmál. Í dag kynnti Seðlabanki Íslands um vaxtahækkun, þar var ákveðið að stýrivextir myndu hækka um 0,5 prósentustig, þá eru stýrivextir komnir í [...]
