UNGIR JAFNAÐARMENN 6 ÁRA

Það er ekki svo ýkja langt síðan ég var ein af þeim sem vildu ekki láta orða mig við feminista og vildi heldur láta kalla mig jafnréttissinna þegar kom að því að ég var að skammast út í kynjamisrétti. Sú mynd sem ég hafði af Feministafélagi Íslands á þeim tíma var að nær öllu leyti [...]

Ungt fólk á samleið með Samfylkingunni

Ég vil að lokum hvetja ungt fólk sem er áhugasamt um frelsi, jafnrétti og bræðralag til að mæta á landsþingið og kynnast kraftmiklu starfi ungliðarhreyfingar Samfylkingarinnar. Allar nánari upplýsingar um þingið er hægt að nálgast á vefriti Ungra jafnaðmarnna, politik.is, en þar einnig að finna nýja pólitíska pistla á degi hverjum. Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar heldur [...]

[Tilkynning] Nýr ritstjóri Pólitíkur

Kæri félagi og lesandi.Í dag læt ég af störfum sem ritstjóri Pólitík.is en ég hef ritstýrt vefritinu frá vorinu 2003. Ég þakka lesendum vefritsins samfylgdina og þá langar mig til þess að þakka þeim fjölmörgu góðu jafnaðarmönnum sem hafa skrifað greinar á vefritið á tímabilinu.Nýr ritstjóri Pólitík.is er Arndís Anna Gunnarsdóttir 23 ára laganemi við [...]

Óforbetranleg kynslóð stjórnmálamanna

Rétt fyrir jólin 2003 samþykkti stjórnarmeirihluti framsóknar- og sjálfstæðismanna, auk Guðmundar Árna Stefánssonar þingmanns Samfylkingarinnar, afar umdeilt lagafrumvarp um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. Þar þóttu stjórnarsinnar skera sér heldur stóra og rausnarlega sneið af almannafé, en lögin stórbæta hag þeirra sem sitja á Alþingi og er í rauninni óútfylltur tékki á ríkissjóð. [...]

UJR, framsóknarmenn og leikskólamálin

Málefni leikskólanna í Reykjavík hafa talsvert verið til umræðu seinustudaga, en Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins lagðinýverið til að hætt yrði við umdeilda hækkun leikskólagjalda fyrirstúdenta. Þessi kúvending framsóknarmanna í málinu er athyglisverð, þarsem það var einmitt undir forystu framsóknarmannsins ogvaraborgarfulltrúans Þorláks Björnssonar í leikskólaráði, sem ákvörðun umþessa hækkun var tekin á sínum tíma. Málefni [...]

Borgarastyrjöldin í Júgóslavíu: Að stríði loknu – 5. hluti

Ástæðan fyrir því af hverju stríð braust á Júgóslavíu í júní 1991 verður seint fullskilin. Margir hafa bent á það að frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar hafi undir niðri kraumað hatur. Það hefur eflaust kraumað hatur og mikil mannvonska hjá einhverjum en á móti því þá hafði ríkt friður á svæðinu í tæp 45 ár. Á [...]

Borgarastyrjöldin í Júgóslavíu: Grimmúðleg átök í Bosníu. 10 ár frá voðaverkunum í Srebrenica – 4. hluti

Stríðið í Bosníu var grimmúðlegt. Þar höfðu Bosníumúslimar, Króatar og Serbar búið í sátt og samlyndi til fjölda ára. Dæmi um þessu góðu sambúð þessara þjóða eru vetrarólympíuleikarnir sem voru haldnir í höfuðborginni Sarajevó árið 1986. Myndin sem umheimurinn fékk af landinu var sú að íbúarnir væru samstæðir og víðsýnir og að landið væri afar [...]

Borgarastyrjöldin í Júgóslavíu: Áróðursstríð háð í aðdraganda styrjaldar – 3. hluti

Sjálfstæðisyfirlýsingar Króatíu og Slóveníu í lok júní 1991 urðu til þess að borgarastyrjöld braust út í Júgóslavíu. Til 10 daga bardaga kom á milli Júgóslavíuhers, sem var að mestu skipaður Serbum og Svartfellingum, og landvarnar- og varaliðs Slóveníu. Her Júgóslavíu varð að hörfa og Serbar létu þar við sitja því fáir Serbar bjuggu í Slóveníu [...]

Borgarastyrjöldin í Júgóslavíu: Hvirfilvindar þjóðernishyggju – 2. hluti

Menntamenn í Belgrad birtu árið 1986 yfirlýsingu sem vakti upp draug serbneskrar þjóðernishyggju. Í skjalinu var því haldið fram að Serbar ættu undir högg að sækja víða í Júgóslavíu og staða þeirra væri engan veginn ásættanleg og í því sambandi var bent á stöðu þeirra í Króatíu og Kosovo, en þeir voru sagðir beitir miklu [...]

Borgarastyrjöldin í Júgóslavíu – 1. hluti

Atburðirnir í Srebrenica áttu sér stað í lok styrjaldarátakanna, en borgarastyrjöldin í Júgóslavíu braust út í lok júní árið 1991. Átökin áttu sér langan aðdraganda og verður hér á eftir fjallað lauslega um Júgóslavíu á 20. öld og fram að dauða Josef Bros Tító árið 1980. Í kjölfarið munu fylgja greinar um tímabilið frá andláti [...]

Sumarbústaður til sölu – seljandi er Orkuveita Reykjavíkur

Orkuveita Reykjavíkur á ekki að taka þátt í áhættumiklum verkefnum eins og þessu. Forráðamenn fyrirtækisins hafa sagt ástæðuna fyrir þessari fyrirætlun með landsvæðið vera sú að hingað til hafi ekki fengist nógu gott tilboð í eignina og í dag fylgi einungis kostnaður af svæðinu. Samt sem áður hefur einkaaðili, dótturfyrirtæki Íslandsbanka, ákveðið að taka þátt [...]

Landsfundur Samfylkingarinnar 2005 – Horft til framtíðar

Landsfundarvefur Samfylkingarinnar!Samfylkingin hefur opnað sérstakan vef í tilefni landsfundar flokksins sem fram fer nú um helgina. Á landsfundarvefnum verða birtar fréttir og tilkynningar af fundinum jafnóðum og þær berast. LANDSFUNDARVEFUR SAMFYLKINGARINNAR Landsfundarvefur Samfylkingarinnar!Samfylkingin hefur opnað sérstakan vef í tilefni landsfundar flokksins sem fram fer nú um helgina. Á landsfundarvefnum verða birtar fréttir og tilkynningar [...]

Samfylking til sigurs!

Helgina 20.- 22. maí munum við jafnaðarmenn halda okkar þriðja landsfund frá stofnun Samfylkingarinnar í maí árið 2000. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum fimm árum og flokkurinn hefur fest sig í sessi og er kominn til að vera.Við höfum staðið af okkur mesta ólgusjóinn þrátt fyrir miklar hrakspár andstæðinga okkar. Hægt og [...]

Sendum skýr skilaboð!

Undanfarin misseri hefur ofbeldi í samfélagi okkar verið mikið í umræðunni. Ofbeldi á sér því miður alltof margar birtingarmyndir og ein sú ógeðfelldasta og versta er sú sem beinist að börnum. Vart er hægt að hugsa sér alvarlegri glæpi. Hér á eftir verða dregnar fram ákveðnar tölur, eða öllu heldur staðreyndir, um kynferðisafbrot gagnvart börnum [...]

Vanvirðing fyrir lýðræðinu og siðleysið algjört

Ég er á móti því að Ísland sé á lista sem gengur þvert gegn samþykktum alþjóðasamfélagsins, heimilar aðgerðir sem ekki voru studdar af Sameinuðu þjóðunum og taka ekki mið af upplýsingum manna eins og Hans Blix, yfirmanns vopnaeftirlitsnefndar SÞ, og Mohamed ElBaradei, yfirmanns Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Hvað sem mönnum finnst um Sameinuðu þjóðirnar og það hversu svifaþung [...]

Fimm vikna kosningadeilur

Hvert og eitt hinna 50 ríkja Bandaríkjanna er í sjálfsvald sett hvernig það hagar framkvæmd kosninga, þ.e.a.s. það er ekkert samræmt kosningakerfi við lýði. Í gær bárust þær fréttir frá Bandaríkjunum að flestir þeir stjórnmálaskýrendur sem mark er tekið á þar í landi voru hættir að reyna að spá fyrir um hver muni sigra í [...]

Og maður fylgir sínu liði…

Kristinn H. Gunnarsson hefur ekki verið sammála ríkisstjórnarflokkunum í veigamiklum málum sem hafa verið fyrirferðamikil síðustu mánuði. Þar ber hæst ritskoðunarlög Davíðs og Halldórs sem og stuðningur þeirra við stríðsbrölt Bush í Írak. Mikill meirihluti þjóðarinnar var ríkisstjórninni ósammála í þessum málum. Ennfremur var hinn almenni framsóknarmaður ósáttur við athafnir og gjörðir flokksforystunnar. Kristinn H. [...]

Vanvirðing og valdhroki

Viðbrögð Halldórs voru hneykslanleg og hélt ég að maður með eins langan stjórnmálaferil að baki myndi aldrei láta aðra eins vitleysu út úr sér. Það skiptir hann engu máli að aðalritari SÞ telji stríðið í Írak, sem er búið að kosta 15 þúsund óbreytta borgara lífið, hafi verið ólöglegt. 15 þúsund borgarar auk fjölda hermanna [...]

Einn glæsilegasti stjórnmálaforingi eftirstríðsáranna

Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra og formaður Alþýðuflokkssins lést um miðja seinustu viku á áttugasta og áttunda aldursári. Með honum er genginn einn áhrifamesti stjórnmálaleiðtogi íslenskra stjórnmála seinustu aldar. Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra og formaður Alþýðuflokkssins lést um miðja seinustu viku á áttugasta og áttunda aldursári. Með honum er genginn einn áhrifamesti stjórnmálaleiðtogi [...]

Ungi steinakastarinn í græna glerhúsinu

Nýverið las ég grein á www.suf.is sem virtist vera eftir ansi tapsáran og pirraðan, jafnvel nokkuð reiðan, ungan framsóknarmann sem bar yfirskriftina ,,Ónýt stjórnarandstaða”. Greinin virðist eins og áður sagði vera skrifuð í miklu fúllyndi í kjölfar þess að Davíð og Dóri drógu hin umdeildu fjölmiðlalög sín alfarið til baka og reyndu með þeim gjörningi [...]

Davíð naut ekki stuðnings 63% sjálfstæðismanna

Í barnalegri trú minni vonaðist ég til þess að þeirri atlögu gegn embættinu og Ólafi Ragnari, sem hefur átt sér stað undanfarin ár og hefur risið hvað hæst seinustu mánuði, myndi ljúka núna. Ég veit ekki hvernig mér gat dottið það í hug, því þessir menn geta einfaldlega ekki komist yfir þá staðreynd að fyrir [...]

Möguleikar Davíðs

Þegar þetta er skrifað hefur höfundur ritskoðunarlaganna og núverandi forsætisráðherra ekkert tjáð sig um málið. Það er vafalítið afar meðvituð ákvörðun hjá Davíð að tjá sig ekki málið, enda hlýtur forsætisráðherra að vera allt annað en ánægður með ákvörðun forsetans. Það er e.t.v. góð ákvörðun hjá honum að bíða með að gefa upp afstöðu sína, [...]

Ólög Davíðs og farsinn í kringum þau

Sjálfstæðisflokkurinn gerði nokkrar tilraunir til að drepa umræðunni um fjölmiðlafrumvarpið á dreif. Aumkunarverðasta tilraunin var gjörningur fyrrverandi oddvita minnihluta sjálfstæðismanna í nokkra mánuði fyrir og eftir seinustu borgarstjórnarkosningar þegar hann reyndi að draga athygli frá málinu með því dylgja enn og aftur um meint tengsl Jóns Ólafssonar og R-listans. Birni Bjarnasyni varð ekki kápan úr [...]

Aðild að Evrópusambandinu eykur fullveldi Íslands!

Það er einnig full ástæða til að benda ungum sjálfstæðismönnum í Reykjavík á, fyrst þeim finnst ummæli formanns Samfylkingarinnar vera svona hræðileg, að núverandi utanríkisráðherra og tilvonandi forsætisráðherra íslensku þjóðarinnar hefur einnig viðrað slíkar hugmyndir. Nýverið gerðu strákarnir í Heimdalli lítið úr orðum formanns Samfylkingarinnar, stjórnmálaflokk sem þeir vilja kalla flokksleysu, varðandi orð hans [...]

Stærra Evrópusamband

Stækkunarferli Evrópusambandins verður hvergi nær lokið í maí því hugsanlegt er að ríki á Balkanskaganum komi til að sækja um inngöngu áður en langt um líður. Ennfremur er líklegt að EFTA-ríkin fjögur Noregur, Sviss, Lichtenstein og Ísland sæki um aðild á næstu árum. Þess vegna er líklegt að ríki Evrópusambandsins verði í kringum 30 talsins [...]

Vindasamt hjá Frjálslyndum

Frá því að Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður af Sverri Hermannssyni í lok nóvember árið 1998 hefur ýmislegt gengið á. Flokknum tókst vel upp að því leyti í kosningunum í fyrra að gera sitt helsta stefnumál að kosingamáli og auka þingstyrk sinn um helming. Flokknum skrikaði þá alvarlega fótur í miðri kosningabaráttunni varðandi stefnu flokksins í [...]

Menntasókn á Frelsi.is

Bjarki Már Baxter skrifaði nýverið grein á Frelsi.is, málgagn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, þar sem hann gerir lítið úr menntasókn Samfylkingarinnar og heldur því jafnframt fram að taka eigi upp skólagjöld við Háskóla Íslands. Bjarki dregur þá barnalegu ályktun að stefna Samfylkingarinnar í menntamálum nái aðeins til Háskóla Íslands: ,,Þessari herferð, sem bar yfirskriftina ,,Menntasókn“, [...]

Metnaðarleysi

Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með lyklavöld í menntamálaráðuneyti þjóðarinnar í 18 af seinustu 21 ári eða frá því að sjálfstæðis- og framsóknarmenn mynduðu ríkisstjórn árið 1983. Ragnhildur Helgadóttir, Sverrir Hermannsson, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Ólafur Garðar Einarsson, Björn Bjarnason, Tómas Ingi Olrich og nú Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa veitt þessu veigamikla embætti forystu. Á þessum 18 árum [...]

Búinn að missa það?

Það er ekki hægt að segja annað en að forsætisráðherra þjóðarinnar, Davíð Oddsson, sé umdeildur maður. Davíð hefur setið lengi á valdastóli – fyrst sem borgarstjóri og síðan sem forsætisráðherra. Á stjórnmálaferli hans hafa hin ýmsu ummæli vakið mikla eftirtekt. Davíð virðist hafa dágott nef fyrir almenningsálitinu og oftar en ekki hefur hann hitt naglann [...]

Ráðherraskipan Halldórs

Þann 15. september á næsta ári er stefnt að gera nokkrar breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðuneytið mun færast til framsóknarmanna og Halldór mun væntanlega setjast í stól Davíðs. Afdrif formanns Sjálfstæðisflokksins eru óljós og hefur hann lítið sem ekkert gefið upp hvað hann muni gera; taka sæti í ríkisstjórn undir forystu Halldórs eða hverfa af [...]

Steinum kastað úr glerhúsi

Nýverið birtist á heimasíðu Ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík grein sem ber heitið: ,,Lýðræðið í Samfylkingunni”. Þar fjallar höfundur í framhaldi af landsfundi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði um hvernig staðið er að vali á forystu flokksins. Undirrituðum þótti inngangsorðin í greininni nokkuð kómísk, en þar minnist höfundurinn á Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi rétt áður en hann ætlar að [...]

Skólagjöld eru ekki rétta leiðin

Nýverið gáfu yfirvöld við Háskóla Íslands í skyn að vilji þeirra sé að lög verði samþykkt á Alþingi sem gefi skólanum leyfi til að innheimta skólagjöld – allt að 300 hundruð þúsund krónur á ári hverju. Hingað til hefur öllum verið gert kleift að mennta sig án þess að greiða sérstök skólagjöld. Þetta hefur tíðkast [...]

Enn meiri öfgar

Nýverið voru haldnar þingkosningar í Sviss. Í gegnum tíðina hafa kosningar í Sviss verið tíðinda litlar sem og stjórnmál landsins. Frá árinu 1959 hafa sömu fjórir flokkar myndað ríkisstjórn í landinu og skipt milli sín sjö ráðherraembættum, en gjarnan er talað um ,,Töfra formúluna” í þessu sambandi. Lengstum hafa þrír stærstu flokkarnir haft tvo ráðherrastóla [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 6. hluti

Margir telja að Bush muni vinna auðveldlega – ég er ekki einn af þeim. Bandarískt efnahagslíf hefur meira eða minna verið í lægð síðan Bush tók við völdum í Hvíta húsinu í janúar 2001. Ég held að þegar að öllu er á botninn hvolft skipta utanríkismál og hernaðarsigrar bandaríska kjósendur minna máli en efnahagsmálin. Þannig [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 5. hluti

Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum á næsta ári. Talið er öruggt að George Bush núverandi forseti muni sækjast eftir endurkjöri. Óljóst er á þessari stundu hver verður frambjóðandi Demókrataflokksins, en tíu einstaklingar hafa lýst framboði í forvali flokksins. Fyrstu kosningarnar í forvali Demókrataflokksins verða haldnar 19. janúar í Iowa og þær næstu verða í New [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 4. hluti

Óljóst er á þessari stundu hver verður frambjóðandi Demókrataflokksins, en níu einstaklingar hafa lýst framboði í forvali flokksins. Kapphlaupið er hafið og línur nú þegar farnar að skýrast.Fyrstur kosningarnar í forvali Demókrataflokksins verður 19. janúar í Iowa og þær næstu verða haldnir í New Hampshire 27. janúar. Níu einstaklingar hafa eins og áður sagði lýst [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 3. hluti

Óljóst er á þessari stundu hver verður frambjóðandi Demókrataflokksins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári. Kappahlaupið er engu að síður hafið og níu einstaklingar hafa lýst yfir framboði og hyggjast sækjast eftir útnefningu flokksins. Margir telja að núverandi forseti muni sigra hvaða frambjóðenda demókrata sem er auðveldlega, en ég er ekki sammála því. Í [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 2. hluti

Margir telja að George Walker Bush muni vinna forsetakosningarnar á næsta ári auðveldlega – því er ég ekki sammála. Bandarískt efnahagslíf hefur meira en minna verið í lægð síðan Bush tók við stjórnartaumunum í janúar 2001. Utanríkismál og hernaðarsigrar skipta bandaríska kjósendur minna máli en efnahagsmálin. Þannig muni ,,sigrar” Bandaríkjahers í Afganistan og Írak koma [...]

Forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins – 1. hluti

Eftir tæpa 15 mánuði munu fara fram forsetakosningar í Bandaríkjunum og það er talið öruggt að George Walker Bush muni sækjast eftir endurkjöri og vera um leið fulltrúi Repúblíkanaflokksins í kosningunum. Óljóst er á þessari stundu hver verður frambjóðandi Demókrata- flokksins. Margir telja að Bush muni vinna auðveldlega – því er ég ósammála. Bandarískt [...]

Við getum öll haft áhrif!

Áður en ég fór að starfa með flokki taldi ég mér trú um að hinn almenni félagsmaður gæti engin áhrif haft á stefnuna – hún væri mörkuð einhvers staðar í reykfylltum bakherbergjum. Ég hélt að valdaklíkur einokuðu flokkana og nýir menn væru eins og lús milli tveggja nagla. Stundum taldi ég mér líka trú um [...]

Ríkisstjóri í kröggum

Þau athyglisverðu og um leið sögulegu tíðindi bárust frá Kalforníufylki í Bandaríkjunum í seinustu viku að andstæðingar ríkisstjórans Gray Davis náðu að safna nægilega mörgum undirskriftum til að kosið verði um það hvort að umboð hans verði afturkallað. Davis hefur verið afar óvinsæll síðustu misseri og samkvæmt könnunum nýtur hann einungis stuðnings rúmlega 25 % [...]

Fjölmiðlar og nafnbirtingar

Fjölmiðlar birtu nafn og myndir af meintum afbrotamönnum í máli tengdu Landssímanum og Skjá einum sama dag og þeir voru færðir í gæsluvarðhald. Nafn grunaðs barnaníðings hefur ekki verið birt, en búseta, aldur og starfsferil hans hefur verið rakin í fjölmiðlum. Fréttastofa Stöðvar 2 birti nafn og myndir af varnarliðsmanninum sem situr í gæsluvarðhaldi þessa [...]

Þegar ég er þyrstur…

Innflytjendur og framleiðendur auglýsa gjarnan afurð sína og er fátt sem kemur í veg fyrir það. Þetta á hins vegar ekki við þegar um er að ræða áfengi, en í 20. grein áfengislaga frá árinu 1998 segir: ,,Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða [...]

Íslenzki fáninn

Í dag er 17. júní og þá drögum við Íslendingar þjóðfána okkar að húni. Opinberir fánadagar eru t.a.m. jóladagur, nýársdagur, fæðingardagur forseta landsins, sjómannadagur og 1. maí. Einnig er ósjaldan flaggað t.d. við útisamkomur, útskriftir, jarðarfarir, opinberar athafnir og fermingar. Eflaust er flestum ókunnug saga íslenska fánans sem og þær reglur sem gilda um hann [...]

Ástæðulaust?

Um miðjan febrúar vildi Tony Blair að vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna fengu lengri tíma til að sinna starfi sínu í Írak og ganga úr skugga um það hvort og hvenær yfirvöld í Írak hefðu eyðilagt meint gereyðingavopn sín. Nokkrum dögum síðar sagði Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna, að Írakar sýndu raunveruleg merku um samvinnu. Degi [...]

Að þremur vikum liðnum

Þrjár vikur eru síðan landsmenn gengu til kosninga og í framhaldi á því var mynduð ,,ný” ríkisstjórn sem hefur tekið við völdum. Úrslitin eru söguleg. Annarsvegar er það sú staðreynd að í 72 ár hefur enginn flokkur annar en Sjálfstæðisflokkurinn hlotið yfir 30 % fylgi og hinsvegar þá er í fyrsta sinn í langan tíma [...]

Konurnar fyrir utan Valhöll

Fyrir tæpum tveimur vikum birtist grein á frelsi.is sem bar heitið ,,Jafnfrétti meðal jafnaðarmanna.” Þar vísar greinarhöfundur í grein undirritaðs frá því um miðjan febrúar sem fjallaði um stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins. Greinarhöfundurinn veltir því jafnframt fyrir sér hvort að kynjahlutföll á listum Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum endurspegli ekki raunverulegan áhuga kynjanna á stjórnmálum. [...]

Hús og híbýli

Framsóknarflokkurinn hefur uppá síðkastið auglýst mikið í sjónvarpi tillögur sínar um að hækka húsnæðislán og í stefnuskrá flokksins segir m.a.: ,,Lánshlutfall almennra íbúðalána verði hækkað í allt að 90% af verðgildi eigna, að ákveðnu hámarki.” Þetta er allt saman gott og gilt, en hefur Framsóknarflokkurinn ekki setið í ríkisstjórn síðast liðin átta ár og því [...]

Sannleikurinn er sagna bestur – en hver er sannleikurinn?

Nú er rúmlega vika síðan stríðið í Írak hófst með árásum Bandaríkjamanna og Breta á Bagdad. Á þessari tæpu viku hefur margt gerst og sjálfur hef ég reynt að fylgjast með gangi máli. Það hef ég að mestu gert í gegnum netið sem og útsendingar BBC í Ríkissjónvarpinu á daginn. Það vakti fljótlega athygli mínu [...]

Svört skýrsla

Í lok síðustu viku var ársskýrsla Stígamóta fyrir árið 2002 kynnt og fjölmiðlar töluðu um svarta skýrslu. Undirritaður ákvað á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna laugardaginn 8.mars að kynna sér skýrsluna. Þennan sama dag árið 1989 var ákveðið á fundi í Hlaðvarpanum að stofna Samtök kvenna gegn kynferðisofbeldi. Nákvæmlega einu ári síðar hófu Stígamót starfsemi sína. Skýrsluna [...]