Stuðningur við réttindabaráttu öryrkja

Allir Íslendingar eiga að geta lifð við mannsæmandi lífskjör. Látum ekkióréttlætið fram hjá okkur fara. Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir stuðningi sínum við öryrkja í baráttu sinni fyrir því sem eiga að teljast sjálfsögð mannréttindi. Við gagnrýnum íslensk stjórnvöld harkalega fyrir sinnuleysi þeirra við þennan minnihlutahóp. Það sést einna best á því að öryrkjar [...]

Ályktun vegna ástandsins við byggingu Kárahnjúkavirkjunar

Ályktun vegna ástandsins við byggingu Kárahnjúkavirkjunar Ungir jafnaðarmenn harma það ástand sem nú er tilkomið við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda hafa fjölmargir verkamenn þurft að líða misrétti og kúgun af hálfu vinnuveitenda sinna. Hið ítalska verktakafyrirtæki Impregilo hefur ásamt sínum undirverktökum komist upp með vítaverða meðferð á vinnuafli sínu og slík vinnubrögð [...]

BYRGJUM BRUNNINN – Öflugri forvarnir

BYRGJUM BRUNNINN – Öflugri forvarnir Þegar talað er um forvarnastarf koma forvarnir við misnotkun fíkniefna eflaust strax upp í huga margra. En forvarnarstarf er miklu víðtækara; í því felast líka forvarnir gegn ótímabærri og óhóflegri áfengisnotkun, forvarnir gegn reykingum, einelti og ýmsum sjúkdómum, svo sem kynsjúkdómum og offitu.
Uppbyggileg áhugamál Ungir jafnaðarmenn telja að [...]

GERUM KAUP Á VÆNDI REFSIVERÐ – Vændi, mansal og klámvæðing

GERUM KAUP Á VÆNDI REFSIVERÐ – Vændi, mansal og klámvæðing Ungir jafnaðarmenn vilja að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Slík löggjöf myndi gera verknað kaupandans saknæman í stað þess að einblínt sé á verknað einstaklingsins sem selur sig. Jafnframt verður að nema úr lögum ákvæði um að vændi sér til framfærslu teljist refsivert. [...]

FÆKKUM GLÆPUM – Afbrot og viðurlög

FÆKKUM GLÆPUM – Afbrot og viðurlög Glæpir eru samfélagslegt vandamál. Til að tryggja mikil lífsgæði í landinu og öryggi borgaranna er mikilvægt að stemma stigu við fjölgun glæpa og stefna markvisst að því að fækka þeim.
Ungir jafnaðarmenn vara eindregið við því að menn slái því strax föstu að eina leiðin til að fækka [...]