Reynsla Jóns Skjaldar af starfsnámi hjá ESB
Þann 16. febrúar síðastliðinn hóf ég þriggja mánaða starfsnám í Evrópuþinginu hjá S&D flokknum (Group of the Progressive Alliance of Socialists and Democrats in the European Parliament) sem má skilgreina sem systurflokk Samfylkingarinnar hér.
Vitræna umræðu um samgöngumál, takk!
Fer umræðan saman við kosningar á komandi ári og keppast menn um að lofa úrbótum hver ofan í annan. Vegamálastjóri hefur meðal annars orðið fyrir ómálefnalegri gagnrýni fyrir að reyna að skapa umræðunni faglegan grundvöll, m.a. frá þingmönnum í kosningaham. Það hlýtur að vera öllum til hagsbóta að umræðan fari fram á faglegum nótum en [...]
Betra seint en aldrei – fyrsta skrefið stigið
Jón Skjöldur Níelsson fjallar um tillöguplagg ríkisstjórnarinnar um lækkun matarverðs sem hann telur hafa verið barið saman í flýti og að ýmsir aðilar hafa þurft að láta fyrri skoðanir sínar lönd og leið. Má þar nefna að Geir H. Haarde lagðist gegn því að sínum tíma að virðisaukaskattur á matvælum yrði lækkaður þar sem það [...]
Maður ársins
Jón Skjöldur Níelsson fjallar í grein dagsins um fjölmenna göngu Ómars Ragnarssonar í miðbæ Reykjavíkur. Hann segir stemninguna hafa magnaðist eftir því sem nær dró Austurvelli enda bættist fólk stöðugt í gönguna. Kliðurinn og lófatakið hafi vakið ákveðið þjóðarstolt.
Jökulsárganga Ómars Ragnarssonar er sennilega fjölmennasta mótmælaganga sem fram hefur farið á Íslandi síðan árið 1973. [...]
Er partýið að vera búið?
Áhugaverð umræða hefur verið á nokkrum íslenskum vefritum síðustu daga um fóstureyðingar. Ungir frjálshyggjumenn á www.uf.is hafa tekið upp stefnu bandarískra repúblíkana og vilja banna fóstureyðingar í nánast öllum tilfellum (undantekningin er þegar heilsa móður er í hættu). Hægri sinnaðar vinkonur þeirra á www.tikin.is eru öldungis ósammála og vilja leyfa fóstureyðingar. Miklar tilfinningar eru í [...]
Er partýið að verða búið?
Í stjórnmálayfirlýsingu stofnfundar Ungra jafnaðarmanna var tekin skýr afstaða í ýmsum málaflokkum og til dæmis var lýst yfir vilja til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ennþá dag í dag eru Ungir jafnaðarmenn eina ungliðahreyfingin sem telja að sæki skuli um aðild að Evrópusambandinu en samtökin hafna jafnframt einangrunarhyggju hinna ungliðahreyfinganna. Ýmsar blikur hafa [...]
Síðbúin jólahugvekja
Það er til skammar að velmegunarríkið skuli ekki tíma að verja meira fé en þessu til hjálpar fátækum og vanþróuðum ríkjum. Fátækt þeirra er ekki þeirra einkamál, heldur er það siðferðisleg skylda allra þjóða heimsins að vinna saman að því að útrýma henni og rétta bágstöddum þjóðum hjálparhönd. Nú er jólahátíðin að verða um [...]
Varnarleysi á heimavelli
Nú er liðin rúm vika síðan að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurhluta Bandaríkjanna. Með hverjum deginum sem líður koma skelfilegar afleiðingar fellibylsins betur og betur í ljós. Ástandið í New Orleans hefur verið mest í umræðunni en þar hefur á tímabili ríkt hálfgert stríðsástand síðan fellibylurinn gekk yfir. Nú er liðin rúm vika síðan [...]
R-listinn á grafarbakkanum
Nú líður ekki á löngu þar til gengið verður til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið mikið í sviðsljósinu vegna komandi leiðtogaprófkjörs þar sem enginn frambjóðandi virðist stefna á neitt ákveðið sæti. Það eina sem er vitað er að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar sér að leiða listann en hinir frambjóðendurnir láta líta svo út [...]
Baráttan um borgina – og flugvöllinn
Ekki fer á milli mála að kosningaslagurinn í borginni er hafinn. Sjálfstæðismenn virðast loksins vera búnir að átta sig á því að fólk er hætt að hlusta á tuð þeirra um meinta skuldasöfnun borgarinnar og bága fjárhagsstöðu. Greinilega var kominn tími til að breyta um taktík og komu þeir nýlega fram með tillögur um uppbyggingu [...]
Göng og aftur göng
Nú er það klappað og klárt – Héðinsfjarðargöng verða að veruleika. Ég vil að sjálfsögðu óska Siglfirðingum og Ólafsfirðingum til hamingju með það og vona heilshugar að göngin verði sú lyftistöng sem talað er um á þessum slóðum. Þarna er um að ræða verk upp á tæpar 7000 milljónir sem tengja saman tvö sjávarþorp með [...]
Aðgengileg og öflug miðborg
Nú hefur verið samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur að hefja niðurrif á þriðja tug gamalla húsa við Laugaveg. Elsta húsið er 120 ára en hin öll reist fyrir 1918. Markmiðið er að rýma fyrir nýjum húsum sem sniðin eru að verslunarrekstri. Stefnt er að því að reyna að laga stíl þessara nýju húsa að götumyndinni og [...]
Jólahugleiðing
Nú er hápunktur jólahátíðarinnar liðin og vona ég að þið hafið haft það sem allra best. Sjálfur hafði ég það mjög gott, fékk margar góðar gjafir, borðaði ótæpilega mikið af jólamat og góðgæti og eyddi þessum dögum í friði í faðmi fjölskyldunnar. Ég hef semsagt ekki yfir neinu að kvarta. En því miður eru jólin [...]
Vitræn umræða óskast!
Vera varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli er mönnum tíðrætt umræðuefni nú sem endranær. Skoðanir fólks á málinu eru jafnskiptar og þær eru margar og verður ekki farið út í það hér. Hinsvegar er nú farið að tengja veru varnarliðsins og hvernig samstarfinu við þá er háttað í auknu mæli við veru Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni. Vera varnarliðsins [...]
Litla spillta Ísland
Loks er skýrsla Samkeppnisstofnunar um samráð olíufélagana komin upp á yfirborðið. Hún staðfestir í meginatriðum það sem allir vissu en vildu ekki trúa. Olíufélögin þrjú, Skeljungur, Esso og Olís blóðmjólkuðu íslenskt samfélag á skipulegan hátt frá því snemma árs 1993 til lok ársins 2001, en það er tímabilið sem skýrsla Samkeppnisstofnunar nær til. Gögn benda [...]
Bílaborgin Reykjavík
Jón Skjöldur Níelsson segir dreifða byggð stuðla að óhagkvæmni í samgöngum og gerir einkabílinn nánast nauðsynlegan í lífi okkar. Hann telur að það þurfi að setja mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í forgang því nýverandi ástand sé óviðunandi. EinkabílaþjóðinBíllausi dagurinn var haldinn hátíðlegur í Reykjavík nýverið og borgarbúar fögnuðu honum með því flykkjast sem [...]
Bush vs. Kerry – Stríð vs. Friður?
Forsetakosningar í Bandaríkjunum fara fram þann 2. nóvember næstkomandi. Þar takast á þeir George W. Bush og John F. Kerry en samkvæmt könnun sem birt var þann 11. september af AP-fréttastofunni hefur Bush forskot á Kerry með 51% á móti 43%. Munurinn var þó meiri áður og hefur Kerry sótt aðeins á. Forsetakosningar í [...]
Suðurnesin og herinn
Í raun er það forkastanlegt að ekki skuli hafa verið gerð nein áætlun gegnum árin til að bregðast við ef allt fer á versta veg varðandi atvinnumál á Suðurnesjum. Margir hafa þó viðrað hugmyndir t.d. um nýtingu húsnæðis á svæði varnarliðsins. Auðvitað eigum við að hugleiða allar leiðir í þeim efnum. Við höfum ekki efni [...]
Forsetaembættið og lýðræðið
Í þeirra augum virðist þjóðin vera einhver hópur af fólki sem eigi ekkert að vera að skipta sér af því sem þeim kemur ekki við og hafi ekki hundsvit á. Það er þessi gríðarlega hræðsla við þjóðina, fólkið í landinu. Stjórnarherrarnir virðast alveg gleyma því í umboði hverra þeir sitja, og kannski líka að þeir [...]
