Pistill um endurreisnina

Það er eitthvað svo “nýþvegið” við nýtt ár – samt horfir þjóðarsálin sífellt um öxl og sér mistök liðinna ára og svo væntingar til þess sem er nýhafið.

Fiskurinn – sameiginleg auðlind þjóðarinnar?

Árið 1984 var kvótakerfið fest í lög með það að markmiði að tryggja verndun fiskistofna og fyrsta árið var úthlutunin án endurgjalds. Margir þeir sem fengu úthlutað hafa mokgrætt á henni og margar byggðir landsins þannig orðið af mikilli atvinnu. Eftir að “kvóta-framsals-brask-kerfið” kom til, þá var það fjármagnseigandinn sem hafði öll vopnin – gat [...]