Að lækna krabbamein

Ég er ekki hlynntur vændi, eða þeim hörmungum sem það getur af sér leitt. Ég er hinsvegar ekki heldur hlynntur því að breyta félagslegu vandamáli í glæpavandamál með það eitt að leiðarljósi að ala fólk sem veit ekki betur upp. Í þeirri skoðun felst engin mótsögn. Ég velti því stundum fyrir mér hverju sé [...]

Misskilið málfrelsi

Það er algengur misskilningur að Íslendingar njóti málfrelsis. Sá misskilningur byggist á því að einhver, einhvern tíma, hafi beitt sér fyrir því að tryggja á óvéfengjanlegan hátt rétt borgarans til að tjá hug sinn, hver svosem hann sé. Það er hinsvegar ekki tilfellið. Málfrelsisgrein stjórnarskrár Íslendinga er þannig upp sett að hún beinlínis og bókstaflega [...]

Og framtíðin kom

Langflestir sem hugsa um stjórnmál að einhverju leyti, virðast hugsa um þau mestmegnis til mikið lengri tíma en svosem eins kjörtímabils. Ennfremur hugsar fólk undantekningalítið um þarfir heildarinnar en þá greinir hinsvegar á um nákvæmlega hvernig best sé að því farið án þess að þrengja of mikið að réttindum minnihlutahópa. Þetta er merki um að [...]

Grundvallar gallar kapítalismans

Fyrst er mikilvægt að nefna að hér er ekki verið að leggja fram lausnir á vandamálunum sem verða borin fram. Tilgangur þessarar greinar er að benda á vandamál kapítalismans sem fólk verður að horfast í augu við, áður en það er farið að ræða lausnir á þeim. Við verðum að vera fullkomlega meðvituð um þá [...]

Málfrelsi fyrir alla, nema suma

Í dag er umræðan að vakna um lýðræði Íslands, eða skortinn þar á. Lengst af hefur fólk haft það á tilfinningunni að það sé meira eða minna óþarfi að rífa mikinn kjaft yfir stjórnvöldum, þar sem valdið liggi augljóslega á endanum hjá þjóðinni. Undanfarnir atburðir hafa hinsvegar sannað það fyrir hverjum sem hefur þorað að [...]

Akureyri tekur fram úr Íslandi

Ríkisstjórnin sýndi fram á að hún væri gjörsamlega óhæf, með því að geta ekki einu sinni haldið eina einustu þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi. Ekki gat hún spurt okkur hvort við vildum 1% aukningu á hagvexti eða óskerta náttúru við Kárahnjúka. Við erum víst svo vitlaus að við vitum ekki einu sinni hvaða skoðun við höfum, eða [...]