Með lögum skal land byggja?
Full ástæða er til að hafa áhyggjur af stjórnarháttum íhaldsmanna og B-deildar þeirra. Formhlið stjórnskipunarinnar er ef til vill í lagi en til þess að hægt sé að telja ríki til lýðræðisríkja er ekki síður mikilvægt að vinnubrögð og viðhorf þeirra sem starfa í umboði fólksins endurspegli virðingu fyrir lýðræðislegum gildum. [...]
Af hverju ungar konur í sveitarstjórnir?
Þor’ég, get ég, vil ég?Fyrir réttum 30 árum gengu 25 þúsund konur um miðbæ Reykjavíkur og hrópuðu: já, ég þori, get og vil! Sú barátta skilaði ómældum árangri. Við sem erum yngri erum eilíflega þakklátar fyrir það. Nú er komið að því að ganga skrefinu lengra og segja: Ég þori, get, vil, [...]
Frelsi => jöfnuður => tækifæri
Nú um helgina fer fram í Reykjavík landsþing Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, undir yfirskriftinni frelsi=>jöfnuður=>tækifæri. Frelsishugtakið er eitt grunnhugtaka í hugmyndafræði jafnaðarmanna. Í hugum okkar stendur það þó ekki eitt og sér heldur er samofið jafnrétti og samhjálp og bræðralagi. Hér er um að ræða eina heild þar sem hvert hugtak styður við hin og [...]
Réttur samkynhneigðra til kirkjulegrar vígslu
Forsætisráðherra sagði í kvöldréttum Ríkissjónvarpsins í gær að þetta væri málefni þjóðkirkjunnar. Þetta er hins vegar ekki rétt. Hjúskaparlög, þar sem kveðið er á um heimild presta og forstöðumenn trúfélaga til þess að gefa saman fólk, gilda einungis um hjúskap karls og konu. Lög um staðfesta samvist gilda hins vegar um hjónabönd [...]
[Ávarp] Kæru félagar!
Ávarp Heiðu Bjargar Pálmadóttur, lögfræðings og meðstjórnanda í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna, á 1. maí kaffi Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.Kæru félagar!Í hvernig samfélagi viljið þið lifa? Viljið þið lifa í samfélagi þar sem ríkisvaldið er mjög veikt, einkaaðilar stjórna og reka flesta þá þjónustu sem almenningur þarf á að halda og [...]
Nýi flugvöllur keisarans
Þegar ég hugsa um stefnu stjórnvalda í málefnum Reykjavíkurflugvallar kemur alltaf upp í hugann ævintýrið Nýju fötin keisarans eftir H.C. Andersen. Flugvöllurinn er eins stórt gapandi sár í hjarta borgarinnar en yfirvöld láta eins og það sé ekkert vandamál, það sé bara fullkomlega eðlilegt að í miðborg höfuðborgarinnar sé stórt ljótt gat fyrir [...]
Hugleiðingar um jafnréttisbaráttuna
20. öldin var um margt merkilegt og ég held að allir geti verið því sammála að kvenréttindabaráttan og breytingar á stöðu kvenna í hinum vestræna heimi sé meðal þess sem stendur upp úr þegar litið er yfir nýliðna öld. Í upphafi aldarinnar var staða kvenna svipuð og hún hafði verið öldum saman. Réttur [...]
Um kynbundið ofbeldi
Í janúar hafa Ungir jafnaðarmenn sett málefni kvenna á oddinn. Á dögunum héldu Ungir jafnaðarmenn einstaklega fróðlegan málefnafund þar sem sjónum var beint að kynbundnu ofbeldi. Framsögumenn voru Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi og starfsmaður Stígamóta og Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar. Fundurinn var einstaklega áhugasamur og vakti gesti mjög til umhugsunar um þennan brotaflokk [...]
Um endurskoðun stjórnarskrárinnar
Fyrir tæpum mánuði síðan óskaði forsætisráðherra eftir tilnefningum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi í nefnd til þess að endurskoða stjórnarskrána. Augljóst er hver hvatinn að skipan nefndarinnar er þó að hvergi sé minnst sérstaklega hið fræga fjölmiðlafrumvarp. Fyrir tæpum mánuði síðan óskaði forsætisráðherra eftir tilnefningum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi [...]
Hvers virði er menntun?
Loksins er margra vikna verkfalli grunnskólakennara lokið…eða hvað? Samningar hafa ekki tekist og allir eru reiðir. Fjöldi kennara situr enn heima og í mörgum skólum er lítil eða engin kennsla. Þegar svona ástand skapast í þjóðfélaginu getur maður ekki annað en velt fyrir sér hvers menntun er metin hér á landi. Iðulega heyrast yfirlýsingar um [...]
Hin staðfasta þjóð
Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ákváðu í einu af bakherbergjum stjórnarráðsins að skella íslensku þjóðinni á lista hinna staðföstu þjóða, eindregna stuðningsmenn árásar inn í Írak. Þeim félögum fannst óþarfi að ræða við kóng eða prest, málið þótti Alþingi og utanríkismálanefnd algjörlega óviðkomandi. Stjórnvöld í Írak töldust yfirvofandi ógn við heimsfriðinn, gjöreyðingarvopn falin undir hverjum [...]
Hæstvirtur forsætisráðherra?
Formaður Framsóknarflokksins virðist ekki enn geta staðið almennilega á bak við þá ákvörðun að velja Siv til að víkja úr ríkisstjórn og boðar frekari breytingar þegar líður á kjörtímabilið. Erfitt er að átta sig á því af hverju það er. Er hann einungis að veifa gulrót til þess að reyna að friða framsóknarkonur án þess [...]
Um breytingar á stjórnarskrá
Nú er orðið ljóst að endurskoða á ýmis ákvæði stjórnarskrárinnar. Þó að það sé eðlilegt að endurskoða stjórnarskrána reglulega hlýtur að teljast óeðlilegt að gera það undir því yfirvarpi að skýra þurfi 26. gr. hennar. Sú stjórnlagakreppa sem upp kom í kjölfar þess að forseti lýðveldisins synjaði lögum undirritunar er að öllu leyti [...]
Hvers vegna þarf að halda þjóðaratkvæðagreiðslu?
Forsætisráðherra og félagar hafa talað digurbarkalega um að staðfesting forseta sé einungis formsatriði og hafi í raun enga þýðingu. Slík staðhæfing er glæfraleg því ,,léttvæg” formsatriði eru nauðsynleg til þess að einhver regla haldist í þjóðfélaginu. Sem dæmi má nefna annað formsatriði sem er talið ein af grundvallarreglum samfélagsins, birtingu laga. Lög öðlast aldrei gildi [...]
Ótti stjórnvalda við lýðræði
Um þessar mundir eru áhugamenn um lögfræði að upplifa spennandi tíma. Í fyrsta sinn í 60 ára sögu lýðveldisins fær þjóðin að ákveða hvort frumvarp frá Alþingi öðlist lagagildi eða ekki. Hér verður ekki rætt um efni frumvarpsins eða hvort ákvörðun forseta Íslands um að synja lögunum staðfestingar var rétt eða ekki heldur hver grundvöllur [...]
