Ófriður 2000

Þegar þetta er skrifað eru nákvæmlega tvö ár síðan innrás Bandaríkjamanna í Írak hófst. Innrás sem gerð var á fölskum forsemdum, innrás sem kostaði mannslíf í gámavís, innrás sem engu hefur skilað. Innrás sem einhverjir amerískir diplómatar göbbuðu auðtrúa íslenska ríkisstjórn til halda að væri nauðsynlegt þjóðþrifaverk í þágu heimsfriðar.
Þegar þetta er skrifað [...]

Þegar ég fór til Valhallar

Um daginn fór ég til Valhallar. Þá er ég ekki að meina að ég hafi dáið í bardaga, verið sótt af valkyrjum og flutt að heiðnum sið til Valhallar goðfræðinnar, heldur er ég að tala um Valhöll Sjálfstæðismanna við Háaleitisbraut. Tilefnið var sýning Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) á myndinni 9/11 Farenhype, andsvari Repúblíkana við mynd [...]

Ísland – Bezt í heimi

Síðastliðinn laugardag settum við Íslendingar enn eitt heimsmetið. Í þetta skipti töfruðum við fram lengstu pylsu í heimi og átum hana líka samdægurs. Metið verður samviskusamlega skráð í heimsmetabók Guiness og geta starfsmenn Myllunar, sem bökuðu brauðið og SS sem bjuggu til sjálfa pylsuna, verið stoltir af sjálfum sér fyrir stórkostlegt afrek í þágu almennings. [...]

Hinir föllnu hermenn Íslands

Þegar Íslendingar hristu endanlega af sér danska kónginn 1944 og ákváðu að standa á eigin fótum var það opinber stefna hins nýja lýðræðis að vera hlutlaus í stíði en leggja áherslu á að viðhalda heimsfriði með diplómatískum aðferðum. Til dæmist voru Íslendingar ekki á meðal stofnþjóða Sameinuðu þjóðanna því það var skilyrði að stofnþjóðinar lýstu [...]

Uppgangur nýnasisma

Nýnasistar hafa alltaf verið jaðarhópur í samfélaginu, bitur krúnurakaður strákahópur í leðurstígvélum sem fær útrás með að krota hakakrossa á opinberar byggingar. Hakakrossarnir og Hitlersdýrkunin hefur hingað til hlotið lítin hljómgrunn í samfélaginu. Almenningur hefur frekar hundsað þá og fyrirlitið heldur en að fyllast andagift yfir göfugum málstað. Democracy won´t stand the test of [...]

Styðjum Stínu

Hægrisinnaðir Danir geta nú andað léttar eftir meira en þrjátíu ára ergelsi. Fríríkinu Christanu verður endanlega lokað. Eitt af fyrstu verkum sitjandi ríkisstjórnarinnar var að að senda út tilskipun þess efnis að Christania yrði jöfnuð við jörðu og í staðin kæmi ,,venjulegt” íbúðarhverfi. Íbúar Christaniu hafa ekki tekið þessu þegjandi. Fyrst rifu þeir niður Pusher-street [...]

Óhlýðni 103

Ég útskrifaðist úr menntó í vor, voða hamingjusöm með áfangann og með farteskið fullt af framtíðardraumum. Í þessi fjögur ár í menntó (og öll hin tíu á undan) hefur mér tekist, misvel þó, að tileinka mér hinar ýmsu hugmyndir úr skólabókunum. Ég get bæði lagt saman og dregið frá, skilgreint fjölskyldu út frá félagsfræðilegu [...]