Kópavogsbúar vilja ekki óperhús skilyrðislaust!

Aðildarríki samningsins og þar á meðal Ísland eru einungis skuldbundin barnasáttmálanum samkvæmt þjóðarrétti en ekki að landsrétti. Því þarf að lögfesta alþjóðalega samninga ef þeir eiga að hafa bein réttaráhrif hér á landi.Að mínu mati á slíkur grundvallarsáttmáli, sem Barnasáttmálinn er, að vera lögfestur hér á landi með sama hætti og Mannréttindasáttmáli Evrópu hefur verið [...]

Er til einhver góð ástæða fyrir því að sniðganga kvennafrídaginn 24. október?

Hversu oft heyrir maður vinkonur sínar segja: „Ég er ekki femínisti. Mér finnst samt alveg sjálfsagt að fá sömu laun og gaurinn í næsta bás. Ég fór í háskóla og er menntuð – er alveg fylgjandi fóstureyðingum, fæðingarorlofi og allt svoleiðis, en ég er ekkert á því að konur séu eitthvað betri en karlmenn – [...]

Menntun er úti í kuldanum hjá ríkisstjórninni

Virðingarleysi fyrir menntun er almennt ríkjandi viðhorf á Íslandi. Það lýsir sér einna best í ráðstöfun símasilfursins sem hefur valdið töluverðum deilum eins og kunnugt er. Aðeins einum milljarði af heildarupphæð hefur verið varið til menntamála. Hús íslenskra fræða á að rísa við hlið Þjóðarbókhlöðunnar í tilefni 100 ára afmæli Háskólans og 200 ára fæðingarafmæli [...]

Hin hamingjusama vændiskona

Í hinni árlegu gúrkutíð beinast augu fjölmiðla að blaðsnepli sem gengið hefur kaupum og sölum á stefnumótasíðum internetsins. Listi þessi hefur að geyma nöfn nokkurra kvenna sem allar eiga það sameiginlegt að stunda vændi. Eflaust velta landsmenn því fyrir sér hvort lögreglurannsókn sem nú hefur verið hleypt af stað eigi einfaldlega rétt á sér; ef [...]

Betri borg – Fyrir bílinn þinn?

Einkabíllinn er þarfaþing í Reykjavíkurborg, því geta fáir neitað. Hvort sem um ræðir vísitölufjölskylduna eða einstaklinginn, er ljóst að flestir nýta sér einkabifreið sem fararskjóta í Reykjavík og nágrenni hennar. Ólíkt flestum höfuðborgum Evrópu, hefur Reykjavík ekki náð að höfða til hins almenna borgarbúa með almenningssamgangnakerfi sínu, sem verður að takmarkast við Strætó BS. Varla [...]

Niður með Ungfrú Ísland – Sniðgöngum styrktaraðila!

Þær sýna okkur baðföt frá Aqualina, kvöldkjóla, cintamani flíspeysur og tjútta við RnB tónlist eins og Yesmine kenndi þeim. Og þjóðin situr límd við skjáinn. Manni er spurn. Því nákvæmlega fyrir hvað stendur fegurðarsamkeppni eins og Ungfrú Ísland? Er verið að hamra á góðum og gömlum gildum? Er verið að boða heilsusamlegt líferni? Eigum við [...]

Enga samgöngumiðstöð í Vatnsmýrina!

En hverjum má kenna um misfarir Reykvíkinga í skipulagsmálum? Sumir vilja meina að það sé alfarið sök Reykjavíkurlistans. Verður þó enn og aftur að minna á að borg er ekki hægt að gerbreyta á þeim 10 árum sem liðið hefur af valdatíð R-listans, og má jafnvel segja sem svo að R-listanum hafi blessunarlega tekist að [...]

Er Íraksstríðið orðið að klisju?

Mér finnst alltaf jafn merkilegt þegar ég heyri fólk segjast vera búið að fá hundleið á umræðunni um stríðið í Írak; það sé endalaust mikið búið að skrafa um þetta og við fáum engu breytt – íslensk stjórnvöld hafa vissulega tekið sína ákvörðun og henni verður ekki breytt. Svo einfalt er það. Þessi málflutningur er [...]

Hetjan Þórólfur

Þórólfur Árnason, annar borgarstjóri Reykjavíkur á þessu kjörtímabili sagði af sér, og e.t.v. ekki við öðru að búast. Þrátt fyrir ýmsar mótbárur af hans hálfu og vafasamar stuðningsyfirlýsingar þurfti einn vinsælasti borgarstjóri allra tíma að víkja úr sæti. En hversvegna? Var það vilji þjóðarinnar, borgarbúa eða óttasleginna sjálfstæðismanna? Þeir sem áfellast hann fyrir mistök olíufélaganna [...]

Hið flónskulega fartölvukapphlaup

Ekki er ýkja langt síðan Menntaskólinn í Kópavogi ákvað að taka stórt skref í tölvumálum skólans og gera fartölvueign að skyldu. Það þykir nauðsynlegt vegna þess að kennsla fer að mestu fram á netinu. Þessi breyting átti að gera MK að brautryðjanda á sviði tæknimála framhaldsskólanna. Ekki liggur fyrir hvort MK sé einhverskonar brautryðjandi, en [...]

Háttvirtur utanríkisráðherra – eða hvað?

Nú hefur Davíð staðfest grunsemdir þjóðarinnar og tilkynnt fyrirætlanir sínar um að taka við utanríkisráðuneytinu. Mörgum er það léttir og öðrum er brugðið, því vitaskuld hefði áhugaverð stjórnarkreppa orðið til hefði Davíð ákveðið að draga sig í hlé og einbeita sér að margumtöluðum ritferli. Allt fór fyrir ekki og minningabækurnar fá að bíða, a.m.k. í [...]

Sjálfstæðismenn – vík burt úr menntamálaráðuneytinu!

Um þessar mundir ríkir glundroði í lífi fjölmargra unglinga sem nýútskrifaðir eru úr grunnskóla og hyggja á framhaldsskólanám. Ekki aðeins eru þeim sett býsna ströng inntökuskilyrði, því aðsóknarfjöldi í framhaldsskólana hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Eins og svo oft áður bítast framhaldsskólarnir um aukafjárveitingar svo þeir geti annað eftirspurn, en vonin er úti hjá [...]

10 ástæður fyrir því að Forseti Íslands ætti ekki að undirrita lög um eignarhald á fjölmiðlum.

1. Látum ekki ríkisstjórnina komast upp með enn eitt frumvarpið sem gengur þvert á vilja þjóðarinnar! Hvort sem það er Kárahnjúkavirkjun, Íraksstríð, skerðing á málfrelsi eða mannréttindum innflytjenda, þá er deginum ljósara að núverandi ríkisstjórn er óhæf, metnaðarlaus og ekki treystandi. Við skulum vona að annað sé hægt að segja um háttvirtan forseta lýðveldisins! [...]

Má bjóða þér að gerast vændiskona?

Um síðustu helgi fóru fram afar athyglisverðar kappræður á milli ungliðahreyfinganna í félagsheimili Gróttu á Seltjarnarnesi. Þar urðu til heldur skrautlegar umræður um málefni á borð við stöðu innflytjenda og framlög ríkis til menntamála. Sú umræða sem vakti hvað mestan múgæsing var án efa deilan um lögleiðingu vændis, eða réttara sagt andstöðu við vændi á [...]

Af Háskólasjóðum, guðfræði og ósanngirni

Ég íhugaði um daginn að segja mig úr Þjóðkirkjunni. Þó aðeins til að styrkja Háskóla Íslands, enda kom trúleysi mitt ekki mikið við sögu. M.a.s. fermd og skírð, og má kallast sannkristin samkvæmt bókinni. Ég trúi hinsvegar meira á erfiðleika Háskólans – því enginn rétthugsandi maður getur neitað tilvist þeirra! Ég íhugaði um daginn [...]

Á leikskóla er gaman!

Um þessar mundir standa yfir kosningar á meðal stúdenta HÍ. Þar er umræðan um skólagjöld án efa mest áberandi og allar fylkingar sameinast um að vera andvíg greiðslu skólagjalda. Vissulega er málefnið brýnt, enda eru jöfn réttindi til náms grunnstoðir velferðarríkis. Íslendingar verja hvað minnstum fjármunum í menntakerfið enda lætur það á sjá. Um [...]

Leikhús og listir – vafasamur iðnaður?

Fátt þykir mér skemmtilegra en að fara í leikhús. Á þessu ári hef ég farið þrívegis á leiksýningu og tel mig nokkuð góða. Því miður eru ekki allir eins duglegir og ég, enda er leikhúslíf á Íslandi rekið með tapi ár eftir ár. Svo má reyndar segja um flest leikhús heims en ekki er erfitt [...]

Víkverji skrifar

Nú eru margir Íslendingar ánægðir. Um götur keyra hamingjusamir heimilisfeður sem hafa loksins sannað fyrir fjölskyldu sinni að það sé alger nauðsyn að eiga jeppa á Íslandi. Fannfergi kæfir allar götur á bólakaf og við erum svo til læst í stofufangelsi svona innilokuð í langþráðum jólasnjónum. Nú veltur þó allt á sjálfsbjargarviðleitni og dugnaði landans. [...]

Fjölmiðlaflóran á Fróni

Það má segja að nú ríki hvort tveggja gullöld og hallæri í fjölmiðlaflóru landsmanna. Dagblöð eiga í fjárhagserfiðleikum, útvarpsstöðvar koma og fara í hverjum mánuði, vefmiðlar eru ekki upp á marga fiska og deilan um hlutverkaskiptingu sjónvarpsstöðva virðist aldrei ætla að taka enda. Það er sama hvert litið er, vart er til sá fjölmiðill á [...]

Ingibjörg forseti?

En þó er einn maður sem greinilega vill ólmur senda hana á Álftanesið. Glöggir menn þurfa svo sem ekki að hugsa sig tvisvar um til að sjá hver sá maður er. Hann kemur þó ekki úr röðum Sjálfstæðismanna sem Ingibjörgu tekst svo listilega að ergja. Það virðist ekki aðeins vera æðsti draumur þeirra hægrimanna að [...]

Er NEI aðeins frestun?

Evrópuumræðan er sannarlega í eldlínunni um þessar mundir. Eistar hafa nýlega samþykkt aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu og Svíar höfnuðu inngöngu í myntbandalagið. Evrópusamfélagið stækkar á ógnarhraða og varla sér fyrir endann á hinni veigamiklu stækkun bandalagsins. Tregi Norðurlandaþjóða vekur þó án efa athygli. Íslendingar og Norðmenn hafa ekki enn gengið til liðs við bandalagið, Svíar og [...]

Hinir ósnertanlegu

Íslendingar vilja vera frábrugðnir öðrum þjóðum. Það er að vísu umdeilanlegt hversu sýnilegur og veigamikill þessi svokallaði munur er á okkur og öðrum þjóðum á Vesturlöndum því allar þjóðir eiga að heita einstakar. Við erum einhverjar mestu þjóðrembur í heimi. Okkar afstaða er réttust; hún endurspeglar hið víðsýna og réttláta samfélag sem hraustasta þjóð heims [...]

Hann Árni…

Nú fer hver að verða síðastur til að næla sér í miða á Þjóðhátíð. Þessi margrómaða útihátíð verður æ vinsælli með ári hverju. Margir kenna gestrisni eyjaskeggja um, aðrir segja að lauslæti íslenskra kvenna verði aldrei greinilegra en á laugardagskvöldinu. Þó segja sumir að brekkusöngur Árna Johnsen sé aðal-tilhlökkunarefni hátíðarinnar og sé beinlínis ómissandi. [...]

Veit einhver um stefnu Samfylkingarinnar í varnarmálum?

Nú er orðið deginum ljósara að Bandaríkjaher hyggst yfirgefa herstöðvar sínar á Miðnesheiði. Þetta eru sannkallaðar gleðifréttir í hugum flestra friðarsinna hér á landi sem beðið hafa þessa tíma í áraraðir. Við skulum þó ekki hrósa happi of snemma, því allt lítur út fyrir að stjórnvöld ætli sér að klóra duglega í bakkann; þau grátbiðja [...]

Halldór og Hannes. Banvæn blanda?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, hefur svipt dulunni yfir ritstörfum sínum. Hann hefur í hyggju að gefa út ævisögu Halldórs Laxness, eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar fyrr og síðar. Mörgum hefur eflaust brugðið í brún þegar ljóst var að einn umtalaðsti stuðningsmaður frjálshyggju og hægristefnu ætlaði að taka að sér að skrifa sögu merkasta atómsskáldssins. [...]

Litlir drengir í stríðsleik

Á undanförnum dögum hafa umræður um veru Bandaríkjahers hér á landi verið heldur áberandi og skoðanir skiptar. Herstöðvarandstæðingar kunna sér ekki læti yfir hugsanlegri brottför á meðan Suðurnesjamenn o.fl. telja sig vera í ,,vondum málum”. Á undanförnum dögum hafa umræður um veru Bandaríkjahers hér á landi verið heldur áberandi og skoðanir skiptar. Herstöðvarandstæðingar kunna [...]

Skýr skilaboð til framhaldsskólanemenda í Reykjavík

Á dögunum vakti Yngvi Pétursson, rektor Menntaskólans í Reykjavík, athygli á þeim gífurlega húsnæðisvanda sem margir menntaskólar í Reykjavík standa frammi fyrir. Uppbygging menntabygginga ýmis konar á landsbyggðinni er gróskumikil og enginn virðist sparnaður vera í þeim efnum, því á meðan Norðlendingar eignast nýjar sundlaugar og heimavistir, þurfa nemendur á Mölinni að búa miður afleitan [...]

Þessar konur…

Skemmst er að segja frá því að Sjálfstæðismenn sáu sér ekki ástæðu til að halda prófkjör í Suðvesturkjördæmi fyrir síðustu kosningar. Eflaust var mönnum mikið í húfi að halda Gunnari Birgissyni í 2. sæti, á meðan Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mátti mæta afgangi í 4. sætinu. Eftir kosningar kom á daginn að 5% kjósenda flokksins höfðu [...]

Hvernig getum við stytt námstíma til stúdentsprófa?

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að íslenskir stúdentar útskrifast töluvert seinna úr menntaskóla en jafnaldrar þeirra erlendis. Þetta gerir íslenskum námsmönnum erfitt fyrir, sérstaklega um þessar mundir þar sem samkeppni í erlendum háskólum verður æ harðari. Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að íslenskir stúdentar útskrifast töluvert seinna úr menntaskóla en [...]