Þjóðarskútan að sökkva?

Um 80% heyrnarlausra í heiminum fá ekki neina menntun, mannréttindi þeirra eru ekki virt og verðleikar þeirra vanmetnir. Í ályktun Heimssambands heyrnarlausra (WFD) frá árinu 1991 segir m.a. að það verði að finna leiðir til þess að þróa táknmálið, fjölga notendum táknmáls og auka gæðin í kennslu heyrnarlausra. Þrátt fyrir að nú séu liðin 15 [...]

Af hetjum og baráttufólki

Ungir jafnaðarmenn hvetja Íslendinga til að líta Evrópu- og alþjóðasamstarf jákvæðari augum. Í ljósi mikilla sviptinga í Evrópu er mikilvægara en aldrei fyrr að Íslendingar heltist ekki úr lestinni í alþjóðavæðingunni, og taki virkan þátt í utanríkisstarfsemi. Ella getur þröngsýni og hræðsla við að stíga stærri skref í milliríkjasamskiptum leitt til einangrunar með tilheyrandi vandamálum, [...]

Samkynhneigðir mega vera hjón, giftast upp á títuprjón?

Ef við eigum að vinna í anda stjórnarskrárinnar og uppfylla jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar afhverju er þá blessuðu þjóðkirkjunni ekki leyft slíkt hið sama? Afhverju getur kirkjan blessað skip, flugvélar og jafnvel jarðgöng en ekki hjónaband samkynhneigðra? Afhverju er ekki stigið skrefið til fulls og kirkjunni leyft að gefa saman samkynhneigða? Hví ekki? Er húmar að [...]

EES og ESB – ólík orðræða

Hvort EES samningurinn eða ESB aðild sé það eina rétta má um það deila enda er ljóst af orðræðunni hér að erfitt getur reynst að samþætta þau. Þess vegna verða menn alltaf að fagna því þegar heit og spennandi málefni eru komin til nefnda. Í upphafi var allt jákvætt…Þegar Íslendingar undirbjuggu inngöngu sína í [...]

Bubba vantar Brynju!

Sláandi fyrirsagnir selja, svo einfalt er það! Sú blaðamennska sem virðist tröllríða litla Íslandi er hasarfréttamennska. Hún er í raun þannig að það er alltaf eitthvað fréttnæmt, alveg sama hversu lítilfjörlegt það er. Stormur í glasi væri góð líking nema að oft á tíðum er ansi mikilli drullu bætt út í og útkoman er drullupollur [...]

Elliheimili nútímans

Fjölmargir hafa látið sig varða mál aldraðra nú uppá síðkastið og skrifað greinar um þennan mikilvæga málaflokk en oft á tíðum eru skrifin neikvæð í garð öldrunarstofnana. Engu líkara en stofnunin sé svo mikil stofnun að ekki sé pláss fyrir hið mannlega innan veggja hennar og þar afleiðandi ekki hina öldruðu. Fæstir kjósa að fara [...]

Landsbyggðarvælið í kellingunum!

Málefni landsbyggðarinnar hafa alltaf vakið hressandi umræðu meðal fólks og þá sérstaklega þeirra sem þola ekki landsbyggðarpot, -fólk, -göng og -barlóm. Þetta fólk býr iðullega í borg óttans – eins og við landsbyggðarfólkið köllum höfuðborgina – og drekkur sitt kínverska te á hip og kúl kaffihúsum. Ég kem frá Suðurnesjunum sem er ýmist litið á [...]

Píkur allra landa sameinist!

Í dag er alþjóðabaráttudagur kvenna eða V-dagurinn. Konur um allan heim halda þennan dag hátíðlegan þar sem aðalmarkmið hans er að stöðva ofbeldi gegn konum. Alþjóðabaráttudagur kvenna er þó miklu eldra fyrirbæri heldur en V-dagurinn. Árið 1910 komu saman kvensósíalistar í Kaupmannahöfn og ein þeirra stakk upp á því að halda baráttudag kvenna. Ákveðið var [...]

Þjónustutilskipun ESB gegn réttindum launafólks?

Hin fræga þjónustutilskipun ESB hefur vakið mjög hörð viðbrögð, sérstaklega hjá verkalýðshreyfingum. Ekki eru allir sáttir um ágæti hennar og telja margir hana ráðast gegn jafnaðar- og velferðarþjóðfélögum. Í viðleitni sinni til að koma að fjórfrelsinu svokallaða; frjálst flæði fjármagns, frjálst flæði fólks, frjálst flæði þjónustu og frjálst flæði vöru er vegið að stoðum [...]

Játningar yfirlýsts ó-jólabarns

Ég er ekkert sérlega mikið jólabarn, hætti að vera það fyrir um fjórtán árum eftir að pabbi dó. Fattaði ekki afhverju það stafaði fyrr en það rann upp fyrir mér að jólin eru hefða- og venjuhátíð. Allar fjölskyldur hafa sínar hefðir og sínar venjur, það komst bara smá los á mínar hefðir þegar höfuð fjölskyldunnar [...]

Varnarmál

Þó svo tímarnir breytist þá er ekkert endilega að mennirnir breytist með. Nú eru um 11 ár frá því að Bandaríkjamenn vildu draga her sinn heim, frá hinu friðsæla litla ísalandi í norðri. Landinu sem er þekkt fyrir fallegar konur, sterka menn, hveri og ríkisstjórn sem er orðin ameríkanseruð. Það er samt ekki bara ríkisstjórnin [...]

Sálartetur og peningar

Mörg fyrirtæki reyna að hjálpa til og bjóða uppá á pössun eða afþreyingu fyrir börn starfsmanna sinna en þó ekki með hag barnanna að leiðarljósi heldur fyrirtækisins. Atvinnulífið á Íslandi stendur við brún hyldýpis. Verði verkfallið langt og erfitt er hætt við að margir þeir sem setja börnin sín í fyrirtækjapössunina hellist úr lestinni [...]

Fyrsta skiptið…

Ég vildi klappa, en það má ekki! Heyr, heyr muldraði ég nokkrum sinnum við sjálfa mig. Ég varð að venjast mun agaðri fundarsköpum en ég hef nokkru sinni kynnst. Í sífellu spurði ég þá sem sátu til hliðar við mig hvað mætti og hvað mætti ekki. Mér var fljótlega rétt mappa með öllum þessum [...]