Vinstri grænir í meirihluta – nei takk!
,,Vei þeim er tekur vísvitandi þá ákvörðun að gerast hækja Sjálfstæðisflokksins eftir næstu kosningar, sama hvaða flokkur það yrði. Kjósendur þurfa líka að senda skýr skilaboð í næstu kosningum, þau eru að kjósa Samfylkinguna. Samfylkingin er trúverðugt stjórnmálafl sem hefur vilja, getu og hæfileikana til að leiða næstu ríkisstjórn jafnaðarmanna eftir 12. maí næstkomandi.” [...]
Meira af gjaldfrjálsum leikskóla í Mosfellsbæ
,,Ég get ekki séð annað en að oddviti VG í Mosfellsbæ sé orðinn einum of samdauna Sjálfstæðismönnum í Mosfellsbæ og tali þvert um hug sér þegar hann segir að gjaldfrjáls leikskóli sé ótímabær. Nema stefna Vinstri grænna í bæjarmálum sé önnur en á landsvísu?” Segir Baldur Ingi Ólafsson formaður Ungra jafnaðarmanna í Mosfellsbæ í grein [...]
,,Gjaldfrjáls leikskóli ekki tímabær”
,,Umhverfismálum var kastað á bálið fyrir forsetastólinn og gjaldfrjálsum leikskóla brennt af ótímabærum ástæðum. Með þessu áframhaldi verður stefnuskrá VG öll komin á Sjálfstæðisbálið. Vinstri græn eru föst í gildru Sjálfstæðismanna og geta ekki bent á aðra en sjálfan sig í þessum klúðursmálum, þar sem barnafjölskyldurnar halda áfram að axla byrðarnar. Vinstri grænir draga taum [...]
