Ásmundi gert lífið leitt
Aðsend grein eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur, fyrrverandi formann Ungra jafnaðarmanna og varaþingmann Samfylkingarinnar, þar sem fjallað er um ummæli Ásmundar Einars Daðasonar, nýkjörinn formann Heimsýnar og þingmann Vinstri grænna, um að hlutverk hans sem formanni Heimssýnar sé að gera Samflykingunni lífið leitt. Í greininni segir m.a. að: „Það er engin frétt að Ásmundur sé á [...]
Svipuhögg og flengingar
Nú eru tímamót þótt ferðin sé rétt að hefjast. Anna Pála Sverrisdóttir bendir í leiðara dagsins á það hvernig stjórnarandstöðunni mistókst að svipta andstæðinga og fylgismenn ESB tækifærinu til að ræða kosti og galla aðildar á málefnalegan hátt. Svipur og flengingar eru líka eitthvað sem bara Sjálfstæðismanni dytti í hug að bendla við pólitíska umræðu.
Til [...]
Hverfisskólana aftur í Reykjavík?
Skilaboðin úr framhaldsskólakerfinu eru misvísandi og benda til þess að nýja hugsun og nýjar áherslur þurfi við inntöku nemenda í skólana ef ekki eigi að auka á stéttaskiptinguna í kerfinu.
Inntaka nemenda í framhaldsskóla er orðin að hálfgerðum skrípaleik. Þegar fór að skýrast um daginn hvaða nemendur kæmust inn í hvaða skóla kom í ljós að [...]
Ég fíla Borgarahreyfinguna á þingi
Jafnvel örlaði á að ég hugsaði: „Þið verðið að skilja að svona er þetta bara! Ég hef ekkert gaman af því sjálf heldur“ – í tón sem maður myndi kannski nota á barnið sitt sem neitar að vakna snemma til að mæta í skólann á svörtum morgni.
Leiðari dagsins er ekki skrifaður út af neinu sérstöku [...]
Þingmenn, í gegn með lög til verndar konum!
LEIÐARI Mér finnst það ömurlegur málflutningur sem heyrst hefur að undanförnu, að frumvörpin um bann á vændiskaupum og við nektardansi séu gælumál sem eigi að víkja fyrir brýnni hagsmunum við að endurreisa efnahaginn.
LEIÐARI „Bann við kaupum á vændi og bann við klámstöðum eru litlar kröfur til að gera til stjórnarflokkanna en breyta miklu fyrir samfélagið. [...]
Við getum valið um opið eða einangrað Ísland
PISTILL Einhvern veginn svona líður mér með að vera ungur Íslendingur á árinu 2009 og þá staðreynd að við séum ekki ennþá búin að sækja um aðild að Evrópusambandinu og þar með upptöku evrunnar. PISTILL Ég sit við morgunmatarborðið með fulla skál af serjósi og mjólkurfernan er fimmtán sentimetra í burtu. En ég teygi mig ekki [...]
Grundvallaratriðið er að halda fólki í vinnu
LEIÐARI Íslenskir kjósendur hafa nú uppgötvað að það er ekki nóg að halda að öll vandamál leysist af sjálfu sér/markaðurinn leysi þau. Það þarf líka pólitískar lausnir.
Meðan við troðum marvaðann ofan í þeim drullupytti sem nýfrjálshyggjan og sextán ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins kom okkur í, skiptir mestu máli að við leggjum allt á okkur til að [...]
Tveir fyrir einn tilboð
LEIÐARI … heldur minnir okkur á óþægilega staðreynd sem allir íslenskir kjósendur þurfa að hafa í huga fyrir 25. apríl: Þau sem kjósa Framsóknarflokkinn hætta á að við Íslendingar fáum aftur yfir okkur sömu blágrænu ríkisstjórnina og eyðilagði Ísland.
LEIÐARI Klofningur Framsóknarmanna um Seðlabankafrumvarpið er ekki bara vandræðalegur fyrir Framsókn, heldur minnir okkur á óþægilega [...]
Smjörklípa
LEIÐARI Seðlabanki Íslands hefur engan trúverðugleika. Stærsta ástæðan núna er að honum stýrir fyrrum stjórnmálamaður með enga hagfræðimenntun. Hann hefur unnið Íslandi óendanlegan skaða með því að hypja sig ekki úr stöðunni.
Davíð Oddsson er með vesen í kringum brottvikningu sína. Hann gerir þetta til að orka Jóhönnustjórnarinnar og okkar allra beinist að flækjum í kringum [...]
Flokkurinn sem ég þekki
LEIÐARI Jæja. Það kom að því að Samfylkingin tekur þá forystu í ríkisstjórnarsamstarfinu sem við höfðum öll veri ð að bíða eftir. Björgvin G. axlar pólitíska ábyrgð og fer – og ekki öskrandi og sparkandi eins og þeir fáu ráðherrar sem hafa sagt af sér í sögu lýðveldisins.
LEIÐARI Jæja. Það kom að því að Samfylkingin [...]
Sigmundur Guevara
LEIÐARI Í nóvember 1956 lagði snekkja af stað frá Mexíkó. Grandma náði til Kúbu 2. desember. Um borð voru 82 ungir byltingarmenn, einn þeirra Che Guevara. Hann lifði af landtökuna og hefur síðan orðið táknmynd byltingaraflanna.
Í desember 2008 gekk Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Framsóknarflokkinn. Hann lifði af talningu í formannskjöri í janúar og varð formaður [...]
Forgangsraða!
Ég vil frekar fara þá leið en taka upp komugjöld vegna innlagnar á sjúkrahús eins nú á að gera. Grafalvarlegt. Er þetta táknræn gjaldtaka sem sýnir að tækifærið til að byggja á jöfnuði, á ekki að nota?
Það sem Ísland þarf núna er að endurbyggja samfélagið á jöfnuði. Vinda ofan af misskiptingunni sem seinasta ríkisstjórn hafði [...]
Nú fær Ísland sér kaffi og vaknar almennilega
Góðan daginn Ísland. Það er erfitt að vera vakin harkalega, án þess að vera tilbúin til að takast á við það sem dagurinn ber með sér. Þannig líður okkur núna. Slæmu fréttirnar berast eins og einhver fái greitt fyrir að búa þær til, segir Anna Pála Sverrisdóttir, formaður UJ í grein dagsins.
Góðan daginn Ísland.
Það er [...]
Brjóttu skattaloforðin, Jens!
Í pólitíkinni jafnast fátt á við vítamínsprautuna sem það er að hitta norræn systkini okkar í UJ. Ekki síst núna, þegar hefur verið erfitt heima við, var gott að hitta fólk sem veit vel hvernig maður byggir upp sterkustu samfélögin.
Í pólitíkinni jafnast fátt á við vítamínsprautuna sem það er að hitta norræn systkini okkar í [...]
Danski draumurinn í Álaborg
,,Svo verkefni Helle Thorning-Schmidt og félaga núna er að draga fram hver sé munurinn á ríkisstjórn sem stjórnað er af þeim og því sem Danir búa við núna. „Danmörk hefur val,“ sagði Helle „og við brennum í skinninu að breyta”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir í grein dagsins. Við getum gert breytingar en bara ef þú [...]
Systur og bræður, verið velkomin!
,,Stjórnmálafólk á ekki að spila á ótta við hið framandi eða óþekkta og búa til ímynduð vandamál og fordóma í tilraunum til að halda flokki sínum inni á þingi”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna í grein dagsins.
Bræður og systur, verið velkomin til Íslands! Verið svo innilega velkomin og ég hlakka til að [...]
Fjöðrin sem varð að hænu
,,Í stað þess að leggjast með á árarnar í því að vinna málstaðnum gagn var reynt að klína því á Samfylkinguna að vilja skólagjöld þegar það blasir við að hefði Sjálfstæðisflokkurinn fengið að ráða yrðu skólagjaldaheimildir í frumvarpinu, en eru það ekki vegna afstöðu Samfylkingarinnar”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður UJ
Fólk hefur aðeins verið að [...]
Ekki halda áfram í Helguvík
,,Ekki bara hafa Ungir jafnaðarmenn og samtök umhverfissinnaðra jafnaðarmanna, ályktað gegn því heldur hafa þingmenn og ráðherrar lýst andstöðu sinni.” Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður UJ. Framkvæmdir geta ekki haldið áfram við álver í Helguvík. Þetta er nákvæmlega svo einfalt. Það eru svo margir endar lausir að hvort sem litið er á framkvæmdina [...]
Ekkert vesen og allt í góðu lagi
,,Lýðræðisleg þátttaka á ekki bara að felast í að kjósa fulltrúa á fjögurra ára fresti. Þegar fulltrúarnir misbjóða almenningi, sem ræður þá í vinnu, finnst mér kjósendur ekki bara hafa rétt á heldur skyldu til að mótmæla í hlutfalli við hversu stór hnúturinn í maganum er orðinn.” Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður UJ.
[...]
Beitum okkur betur innan Evrópu
,,Það má segja með réttu að við höfum þó nokkur tækifæri á að beita okkur innan ESB gegnum EES-samninginn þannig að á okkur sé hlustað”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna. Nei, við Íslendingar erum ekki formlegir aðilar að Evrópusambandinu. Hins vegar tökum við mjög verulegan þátt [...]
Lýðræðið í borginni
,,Lýðræðið er nefnilega flóknara en að gera hlutina af því maður getur það. Í þessu tilfelli var engin málefnaleg ástæða til að skapa frekari óreiðu í stjórn borgarinnar en sjálfstæðismenn höfðu þegar gert fyrir þremur mánuðum”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna
[...]
2008: Stanslaust partý?
,,Ungt fólk sem vill hafa áhrif á samfélagið sitt í gegnum stjórnmálastarf á hins vegar auðvitað fyrst og fremst að vera með hugsjónirnar á hreinu. Vita hvernig samfélagi við viljum búa í. Annars getum við bara gleymt þessu”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður UJ.
[...]
Viljum við nógu mikið?
,,Hins vegar getur lagasetning hjálpað okkur í þeirri vegferð að breyta ómeðvituðum hugsunarhætti. Beitt jafnréttislöggjöf sýnir að okkur er alvara í jafnréttismálum”. Segir Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna.
Það liggur frumvarp fyrir Alþingi núna sem snýst um jafnan rétt og [...]
Bændur úr hlekkjum hafta
Frumkvæði bænda er haldið niðri með gamaldags forsjárpólitík sem viðgengst ekki lengur í öðrum atvinnuvegum. Af hverju eiga bændur einir að búa við opinbera verðstýringu, miðstýrðan ríkisbúskap og framleiðslustýringu? Spyr Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna.
Ég var ein af þeim [...]
Þú þarft bara að vilja að við tökum ábyrgð hvert á öðru
,,Pólitík snýst um lífið okkar og hvernig aðstæður við viljum skapa hvert öðru til að lifa því. Við höfum öll upplifað mismunandi hluti og komum þess vegna með ólík sjónarhorn að fundarborðinu. Einmitt þess vegna er betra að sem flestir hafi áhrif á pólitík, hvort sem er í stjórnmálaflokkum eða annars staðar.” Segir Anna Pála [...]
Valfrelsið
,,Ekki bara fer það saman að vera jöfn og frjáls. Það að við séum jöfn gerir okkur frjálsari. Hér er að sjálfsögðu ekki verið að tala um litla kassa, alla eins, sem í besta falli má velja lit á. Að vera jöfn er ekki að vera eins. Það er að okkur öllum séu raunverulega tryggð [...]
