Fjársveltisstefna í ríkisrekna menntakerfinu

Þegar útlit til menntamála eru skoðuð er mikilvægt að gera greinarmun á þeim útgjöldum sem ríkisvaldið ver í málaflokkinn annars vegar og hins vegar þeim útgjöldum sem sveitarfélögin verja í hann. Sveitarfélögin, sem reka grunnskólana, standa sig miklu betur en ríkisvaldið og er Ísland á toppnum hvað varðar það. Undanfarinn áratug hafa jafnaðarmenn stjórnað þeim [...]

Það skiptir máli hverjir stjórna

Samfylkingin hefur sýnt að henni er treystandi til góðra verka. Það var Samfylkingarfólk í Reykjavík sem hækkaði laun lægstu stétta og minnkaði kynbundinn launamun um helming. Það var Samfylkingarfólk í Hafnarfirði sem hóf niðurgreiðslu á íþrótta- og tómstundastarfi barna. Það var Samfylkingarfólk í Árborg sem setti lýðræðismálin og íbúaþing á oddinn. Og það var Samfylkingin [...]

D-listinn og leikskólamál

Sama hvar maður drepur niður fæti fyrir kosningarnar núna í maí, eru helstu kosningamálin á sviði félagsþjónustu. Málefni aldraðra, leikskólamál, kjaramál ungra barnafjölskyldna og öryrkjamál eru alls staðar á dagskrá og virðast vega hvað mest í hugum kjósenda. Því spyr ég ykkur lesendur góðir, hvaða flokkur getur sinnt félagsþjónustu betur en félagshyggjuflokkurinn Samfylkingin? Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkurinn [...]

9000 börn fóru ekki til tannlæknis undanfarin 3 ár

Í nýlegu svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi um ferðir barna til tannlækna kemur margt fróðlegt í ljós.
Þar kemur fram að tæp 2.000 barna, 6 ára og eldri, hafa aldrei farið til tannlæknis. Tæplega 9.000 börn hafa ekki farið til tannlæknis síðastliðin þrjú ár og um 12.000 börn hafa ekki farið til [...]

Tvöfaldur sigur

Þegar ég var í kynfræðslu hér á árum áður sagði kennarinn okkur 8. bekkingum í grunnskólanum á Sauðárkróki að við ættum bara einn líkama og fengjum bara einn sjens. Við Íslendingar eigum bara eitt land og við fáum bara einn sjens, snúum baki við stóriðjustefnunni og virkjum landsbyggðina á annan máta, það er alveg hægt. [...]

Lögfestum Barnasáttmálann

Það versta við þetta mál er þó að mínu mati sú staðreynd, að þeim fjölmörgu einstaklingum í Mið Austurlöndunum sem hafa barist fyrir tjáningarfrelsi, er akkúrat enginn greiði gerður með því að Jyllands Posten og fleiri vestrænir fjölmiðlar slái sig til riddara, atyrði spámann múslima á grundvelli tjáningarfrelsisins og almennt híi á múslima fyrir að [...]

Janúarbörn hagstæðari en desemberbörn!

Islam er í eðli sínu friðsæl trú, nafnið Islam þýðir eftir því sem ég best veit, „Hin friðsæla undirgefni við guð“. Af vestrænni fjölmiðlamennsku að dæma virðist þó sem Islam sé gegnsýrt af heitrúarmönnum sem túlka Kóraninn gagnrýnislaust og af miklum trúarhita. Eftir 11. september 2001, var mikið rætt um hugsanlega spennu sem vanþekking beggja [...]

Áfram ESB!

Hver manneskja skal hafa fullt sjálfræði og rétt til að móta framtíðina í félagi við aðra. Ungir jafnaðarmenn sjá fyrir sér samfélag þar sem allir tekið ákvarðanir um eigið líf og látið drauma sína rætast óháð kynferði. Til að þetta samfélag geti orðið að veruleika verðum við að bylta þeim stofnunum og gildum sem enn [...]

Aukum vægi einkareksturs í heilbrigðisþjónustu

Markmiðið með auknum einkarekstri eða reksturs sjálfseignarstofnana í heilbrigðisþjónustu er að betri þjónusta fáist fyrir sömu eða minni fjármuni. Það er því markmiðið og árangur þjónustunnar sem skiptir máli en ekki leiðin að því. Tryggingaverndin og greiðsluþátttakan er pólitísk ákvörðun en ekki þjónustuformið. Þrátt fyrir að rúmlega fjórðungur fjárlaga ríkisins sé varið til heilbrigðismála [...]

Ekki er allt gull sem glóir

Það er ekki stöðugleiki að búa við allt að 40% sveiflu í gengi íslensku krónunnar. Það er ekki stöðugleiki hafa um 5% verðbólgu. Það sýnir ekki stöðugleika þegar skuldir heimilanna og fyrirtækjanna tvöfaldast á 5 árum. Það er ekki stöðugleiki að vera ein skuldugasta þjóð í heiminum. Né er það stöðugleiki þegar um 1% hækkun [...]

Hugsum vel um eldri borgara

Málefni eldri borgara fá sjaldan þann hljómgrunn sem þau eiga skilið og sum svið sem skipta aldraða mjög miklu liggja í þagnargildi. Einn þessara málaflokka er geðheilbrigðisþjónusta og þunglyndi meðal eldri borgara. Ýmsir sérfræðingar, s.s. sviðstjórar á Landspítalanum og geðlæknar, hafa nýverið bent á þörfina í þessum málaflokki.Ég hef tvisvar sinnum lagt fram á Alþingi [...]

Vonlaus aðstaða þolenda heimilisofbeldis

Ríkissjónvarpið birti á þriðjudaginn sláandi viðtal við konu sem hafði að sögn búað við ofbeldi af hálfu fyrrum maka síns um langt skeið og nú síðast orðið fyrir tilraun til manndráps af hans hálfu. Viðkomandi einstaklingur lýsti algjöru vonleysi með sína stöðu og benti m.a. á að lögreglan hafi ekki talið sig geta gert [...]

Einstök samstaða ungliðahreyfinganna

Í gærkvöldi var haldinn opinn fundur allra ungliðahreyfingana í Reykjavík um frumvarp mitt um afnám fyrningarfresta á kynferðisbrotum gegn börnum. Það er óneitanlega mjög sérstakt að allar ungliðahreyfingar skuli standa saman að fundi sem þessum með það fyrir augum að beina kastljósinu að einu tilteknu máli og er ég þeim afar þakklátur fyrir þennan stuðning. [...]

Afnemum þessa fyrningu!

Nýgenginn Hæstaréttardómur þar sem maður var álitinn sekur um gróf kynferðisafbrots gegn barni en var engu að síður sýknaður, þar sem afbrot hans voru fyrnd sýnir vel að þörf er á að breyta fyrningarreglum. Mitt allra fyrsta þingmál á Alþingi var lagafrumvarp um afnám fyrningarfresta vegna kynferðisafbrota gegn börnum undir 14 ára aldri. Þetta mál [...]

Höldum í málskotsréttinn áfram

…Í fimmta lagi sannaði málskotsrétturinn gildi sitt í sumar. Atburðir sumarsins sýna að mínu mati að málskotsréttur hjá forseta getur verið nauðsynlegur við vissar aðstæður þótt að almennt ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur hefði verið í stjórnarskránni. Það á t.d. við þegar afleiðingar tiltekinna lagafrumvarpa koma strax í ljós, eins og átti við um fjölmiðlafrumvarpið hið fyrsta, [...]

Hinn týndi brotaflokkur, heimilisofbeldi

Í dag hefst 16 daga átak gegn kynbundu ofbeldi fjölmargra félagasamtaka. Átakið mun standa til 10. desember og markmið er að sýna fram að margar hliðar kynbundins ofbeldis. Ég er löngu orðinn sannfærður um að Íslendingar þurfa að setja úrræði gegn kynbundnu ofbeldi í mikinn forgang hér á landi. Eftir að jafnaðarmenn á Spáni tóku [...]

Slæm fjármálastjórn Sjálfstæðismanna

Reynslan sýnir að það er lítið mark takandi á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hvort sem litið er á meintan afgang ríkissjóðs eða ríkisútgjöld. Það er komið nóg af þjóðsögunni um hina styrku hönd Sjálfstæðisflokksins á ríkisfjármálunum. Reyndin sýnir að slök fjármálastjórn hefur ráðið ríkjum síðan Geir H. Haarde tók við ríkisfjármálunum… Svipaða sögu má [...]

Galin skipun í Hæstarétt

Skipun Jóns Steinars Gunnlaugssonar í Hæstarétt er hreint út sagt með ólíkindum. Ég held að þetta sé dropinn sem fyllir mælirinn. Nú er búið að koma yfirlýstum baráttumanni Sjálfstæðisflokksins og Davíðs Oddssonar í Hæstarétt, við hliðina á frændanum. Þetta er maður sem er sífellt að taka flokkspólitíska afstöðu sem virkur þátttakandi í pólitísku ati. Þetta [...]

Öryrkjar sviknir tvisvar

En lengi getur vont versnað. Nú á að svíkja öryrkja aftur og nú um seinni áfangann sem heilbrigðisráðherra hafði lofað að kæmi í ár. Forystumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa nýlega útilokað frekari greiðslur til öryrkja þrátt fyrir orð heilbrigðisráðherra og fyrirliggjandi samkomulag. Ríkisstjórninni ber hins vegar að standa við sín orð en þessari ríkisstjórn er [...]

Meinloka Morgunblaðsins

Áður óþekkt ósmekklegheit komu einnig fram í leiðara þann 15. ágúst þegar Morgunblaðið notaði þorskastríðin sem röksemd gegn aðild að ESB. Það að líkja aðild að ESB við þorskastríðin, eins og gert er í leiðaranum, er svo fráleitt að það tekur engu tali. Þá voru Íslendingar að verjast veiðum og yfirgangi erlendra þjóða í okkar [...]

Sjávarútvegurinn og ESB

Umræðan um hugsanlega aðild Íslands að ESB snýst fljótlega upp í umræðu um sjávarútvegsmálin. Það er hins vegar margs konar misskilningur og rangfærslur í umræðunni á Íslandi um sjávarútvegsstefnu ESB. Eftirfarandi fjórar staðreyndir verður að hafa í huga… Það er alltaf ánægjulegt þegar umræðan um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu fer af stað hér [...]

Döpur arfleið Davíðs

…Samkvæmt skoðanakönnun vilja um 70% þjóðarinnar að Davíð Oddsson hætti í pólitík og er það snautlegur endir á löngum ferli. Reyndar er fróðlegt að fara yfir árangur Davíðs Oddssonar sem forsætisráðherra eftir þennan langa valdatíma.Efnahagslegur uppgangur hefur af sumum verið tengdur við veru Davíðs Oddssonar í stjórnarráðinu. Það er mikil einföldun og misskilningur. Mikill efnahagslegur [...]

Raunveruleikasjónvarp á þingi

Sem nýjum þingmanni líður mér stundum þessa dagana eins og ég sé þátttakandi í raunveruleikasjónvarpi þar sem handritið er skrifað jafnóðum. Vitleysisgangurinn og farsinn sem maður verður vitni af niðri á þingi vegna fjölmiðlamálsins er með ólíkindum og er ýkjukenndari en nokkur skáldskapur. Sem nýjum þingmanni líður mér stundum þessa dagana eins og ég [...]

Frjálslynt fólk velur Samfylkinguna

Hegðun forsætisráðherra er stundum alveg með ólíkindum. Það líður vart sá dagur að forsætisráðherrann hágrenji ekki yfir fjölmiðlaumfjöllun um sig og telur sig búa við hörðustu pressu í heimi. Þessi forsætisráðherra myndi ekki þola við einn dag með bresku pressunni. Fólk sem hefur fyrir því að fletta erlendum blöðum veit það. Forsætisráðherra neitar að tala [...]

Ritskoðun er í höndum tveggja þingmanna

Með þessu kemst hinn brenglaði tilgangur stjórnarflokkanna upp á borðið. Frumvarpið er einfaldlega viðbrögð við fréttaflutningi. Og þá erum við kominn á mjög hálan ís. Ís ritskoðunar. Fjölmiðlar hafa heilagan rétt til að gagnrýna stjórnvöld og stjórnmálamenn og gera grín af þeim. Stjórnvöld mega ekki komast upp að geta sett lög á þá sem [...]

Stóri Björn

Að lokum er rétt að minna þjóðina frelsisskerðing er oftast nær hægfara en ekki í einu vetfangi. Aukið eftirlit og skerðing á persónuréttindum eru ætíð réttlætt með fögrum orðum og góðum tilgangi. Það er styttra í Stóra bróðir, sem George Orwell lýsti, í okkar tilviki Stóra Björns, en margir halda. Við verðum berjast gegn þeirri [...]

Hlúum að börnum á Íslandi

Það er okkur öllum í hag að hér vaxi upp ábyrg og hamingjusöm kynslóð sem hefur búið við jöfn tækifæri allt sitt líf, hvort sem litið er á efnahag, kynferði eða kynþátta. Ísland er 9. ríkasta þjóð í heimi og við höfum fullt efni á því að gera vel við verðmætustu eign þjóðarinnar sem börnin [...]

Brostin réttlæting á ríkisvaldinu

Ein helsta réttlætingin jafnaðarmanna á ríkisvaldinu fyrir utan að tryggja öryggi þegnana er að gæta hagsmuna þeirra sem minna mega sín. Nokkrir hópar í okkar ríka samfélagi verða ætíð út undan hjá núverandi ríkisstjórnarflokkum. Þessir hópar eiga þó það sameiginlegt að aðstoð við þá er ein helsta réttlæting á tilvist ríkisvaldsins. Það er ekki hægt [...]

Hin raunverulegu skólagjöld

Nú geta skólagjöld í leikskóla oft verið yfir 30.000 kr. á hverjum mánuði fyrir eitt barn. Það er alveg ljóst að slík gjöld, upp á um 400.000 kr. árlega, eru gríðarlega þungur baggi fyrir flestar fjölskyldur. Einn mánuður í leikskóla kostar svipað og eitt ár í háskóla. Fjölskyldur leikskólabarna eru iðulega sá hópur sem hefur [...]

Burt með afnotagjöldin og RÚV af auglýsingamarkaðinum

Það eru engin öryggis-, menningar- eða lýðræðisleg rök fyrir því að RÚV sé ráðandi aðili á auglýsingamarkaði. Málefni Ríkisútvarpsins hefur löngum verið í orrahríð íslenskra stjórnmála. Það er skiljanlegt í ljósi þess umhverfis sem það starfar í og þess mikla áhrifamátt sem stofnunin hefur. Útsendingar Ríkissjónvarpsins eru þó einungis 7% af heildarútsendingartíma íslenskra sjónvarpsstöðva. [...]

Heimahjúkrun á hakanum

Það er alveg með ólíkindum að núverandi ríkisstjórn sé svo treg til að beita úrræðum sem bæði eru ódýrari og hentugri fyrir alla aðila. Þessi tregða á bæði við heimahjúkrun, uppbyggingu hjúkrunarheimila og eflingu heilsugæslunnar. Við stöndum langt að baki nágrannaþjóðum okkar í heimahjúkrun og í Reykjavík eru allt að 20.000 manns án heilsugæslu. [...]

Háskólanám er hornreka hjá ríkisstjórninni

Þriðji menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokkins á 2 árum hefur nýverið tekið við. Jómfrúargrein ráðherrans sem birtist í Morgunblaðinu 7. febrúar síðastliðnum er fyrir marga hluta sakir furðuleg. Þar er fullyrt að menntasókn hafi verið í gangi í mörg ár undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Ef einhver sókn hefur verið í gangi er ljóst að hún hefur farið furðuhljótt. [...]

Eftirbátar, eftirbátar og eftirbátar

Það hefur lengi verið þjóðsaga að Íslendingar standi sig vel í menntamálum. Sú þjóðsaga hentar fyrst og fremst þeim flokki sem hefur haft lyklavöldin í menntamálaráðuneytinu í 18 ár af síðustu 21 ári. Tölurnar tala sínu máli. Íslensk stjórnvöld verja minna fé til háskólana en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Færri útskrifast með framhaldsskóla- og háskólapróf en á [...]

Vanhæfir þingmenn

Þetta mál snýr að vanhæfi þingmanna og hvort þeir geti yfir höfðu verið vanhæfir. Að mínu viti er út í hött að halda því fram að þingmenn geti aldrei orðið vanhæfir enda hafa fjölmörg þjóðþing í kringum okkur sett reglur um hvenær þingmenn eru vanhæfir og hvenær ekki. Eðli löggjafarstarfsins hér á landi getur ekki [...]

Fyrning kynferðisafbrota gegn börnum

Í núverandi refsilöggjöf fer lengd fyrningarfrests eftir lengd hámarksrefsingar sem lögð er við viðkomandi broti. Aðeins þeir glæpir þar sem hámarksrefsing er ævilangt fangelsi fyrnast aldrei. Þetta eru manndráp, mannrán, ítrekuð rán, landráð, uppreisn gegn stjórnskipun ríkisins, árás á Alþingi, æðstu stjórnvöld, Hæstarétt eða landsdóm……Þess vegna má með góðum rökum komast að þeirri niðurstöðu að [...]

Skrýtin pólitík

Fyrsta haustþingi eftir kosningar er nú lokið. Þingið var gjörólíkt því sem kjósendur hefðu mátt búast við af áherslum og ummælum kosningabaráttunnar…Önnur mál voru í hefðbundnum farvegi. Ríkisstjórnin fékk sinn árlega Öryrkjadóm, rannsókn samkeppnisyfirvalda á tryggingarfélögunum hélt áfram enn eitt árið, Davíð Oddsson skammaðist út í valda kaupsýslumenn, Jón Steinar stóð í ritdeilu og enn [...]

Öryrkjar sviknir

Í hinni pólitísku forgangsröðun eiga öryrkjar að vera mjög ofarlega á lista. Svo einfalt er það. Það er margt annað sem ætti að vera aftar í forgangsröðun nútímastjórnmála. Við þurfum að átta okkur á hlutverki ríkisvaldsins og eitt af því fáa sem nánast allir stjórnmálamenn geta verið sammála um er að ríkisvaldið á að koma [...]

Gleymd sannfæring

En aldeilis ekki. Dagný Jónsdóttir greiddi við fyrsta tækifæri atkvæði gegn viðbótarfjárveitingu til Háskóla Íslands. Hún hvorki studdi tillöguna eins og stúdentar hefðu fyrirfram búist við, né sat hún hjá. Hún kaus gegn tillögunni. Umrædd tillaga var kjörið tækifæri fyrrverandi framkvæmdastjóra Stúdentaráðs til að sýna vilja sinn í verki. Það er einfaldlega ekki oft sem [...]

Nýja hugsun í heilbrigðismálin

Ísland ver næstmest allra OECD þjóða af opinberu fé til heilbrigðismála á eftir Þýskalandi. Ísland er hins vegar ein yngsta þjóð Evrópu og sé tekið tilliti til aldursdreifingar ver Ísland mest allra OECD þjóða af opinberu fé til heilbrigðismála. Ísland er því á toppnum í útgjöldum. Samfylkingin hefur ákveðið að heilbrigðismál verði næsta pólitíska [...]

Hvað kaus unga fólkið í vor?

Kosningarannsókn Ólafs Þ. Harðarssonar, prófessors í stjórnmálafræði, um hvað einstakir aldurshópar kusu í síðustu tveimur alþingiskosningum er stórmerkileg. Eftir alþingiskosningarnar 1999 kaus 15% aldurshópsins 18-22 ára Samfylkinguna. Aðrar tölur blasa hins vegar við eftir alþingiskosningarnar vorið 2003 en þá kaus 34,1% þessa aldurshóps Samfylkinguna. Fylgi Samfylkingarinnar meðal þessara mikilvægu kjósenda, sem eru að kjósa í [...]

Forgangsmál nr. eitt

Ár eftir ár eru málefni geðsjúkra einstaklinga í uppnámi og við heyrum meira að segja af ófremdarástandi í málefnum geðsjúkra barna og unglinga. Á meðan þessir hlutir eru í ólestri þá getum við einfaldlega ekki réttlæt nein önnur ríkisútgjöld. Þetta er einfaldlega hluti af grunnskyldu samfélagsins, langt á undan jarðgöngum, sendiráðum, búvörusamningum og menningarhúsum. [...]

Landsþing Ungra jafnaðarmanna 3.-5. október 2003 í Reykjavík

Landsþing Ungra jafnaðarmanna 3.-5. október 2003 í Reykjavík-Glæpir 2003-Dagskrá Landsþing Ungra jafnaðarmanna 3.-5. október 2003 í Reykjavík-Glæpir 2003-
Dagskrá
Föstudagur 3. október
17:00 Landsþing sett í Hressingarskálanum í Austurstræti (þar sem McDonald´s var til húsa) Kosning þingforseta og þingritara Skýrsla stjórnar17:10 Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, ávarpar landsþing17:20 Framboðsræður17:30 Kjörfundur hefst í [...]

Lögum heilbrigðiskerfið

Heilbrigðismál eru langstærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. Heilbrigðismál snerta einnig mikilvægustu hagsmuni hvers einstaklings. Þrátt fyrir augljóst mikilvægi málaflokksins er víða pottur brotinn í heilbrigðismálum þjóðarinnar sem þó er sú sjötta ríkasta í heimi…Einnig þarf að huga að því að láta fjármagn ríkisvaldsins fylgja sjúklingunum í mun meiri mæli en nú er gert en svipuð aðferðarfræði hefur [...]

Verðsamráð í pólitísku skjóli

Þetta mál er alvarlegt fyrir viðskiptalífið og er atlaga að frjálsum markaði. Nánast allir ábyrgðarmenn þessa máls tengjast einum stjórnmálaflokki, Sjálfstæðisflokknum. Aðeins einn flokkur telur að ekki eigi að beita háum sektum í samráðsmálinu og það er Sjálfstæðisflokkurinn. Aðeins einn flokkur hefur amast yfir umræðunni og telur að leki upplýsinga til fjölmiðla sé alvarlegri [...]

Hafa skal það sem sannara reynist um ESB

Það er algengt er að andstæðingar aðildar vísa til þess að ESB sé risavaxið skriffinnskubákn með óteljandi starfsmönnum. Hið rétta er að ESB hefur færri starfsmenn en breska umhverfismálaráðuneytið. Nánast þriðji hver starfsmaður ESB vinnur við þýðingar vegna þeirrar meginreglu ESB að þegnar aðildarríkja ESB geti nálgast ákvarðanir ESB á sínu eigin tungumáli. Ef ESB [...]

Breytum og virðum stjórnarskrána

Íslendingar þurfa í náinni framtíð að huga að breytingum á stjórnarskránni. Það er hins vegar ekki einfalt að breyta stjórnarskránni þar sem slíkar breytingar þurfa samþykki tveggja þjóðþinga. Um leið og breyting á stjórnarskrá er samþykkt þarf að rjúfa þing og kjósa að nýju. Oft eru þó stjórnarskrárbreytingar gerðar í lok kjörtímabils þannig að ekki [...]

Það þarf að þyngja dóma í ofbeldismálum

Refsiramminn í ofbeldismálum sem leiða til dauða eða eru mjög gróf er mjög rúmur eða allt að 16 ára fangelsi. Hámarksrefsing fyrir nauðgun er einnig 16 ára fangelsi en fyrir 1992 gat nauðgun varðað ævilöngu fangelsi. Refsiramminn fyrir kynferðismök við barn er allt að 12 ára fangelsi og fyrir sifjaspell er allt að 10 ára [...]

Sögulegur sigur Samfylkingarinnar

Það eru ekki minni tíðindi að einungis munar um 2,7% stig á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokkunum á landsvísu. Í Reykjavík norður, kjördæmi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, er Samfylkingin meira að segja stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Í kosningunum árið 1999 var Sjálfstæðisflokkurinn um 17% stigum stærri en Samfylkingin í Reykjavík. Samfylkingin vann sögulegan stórsigur í alþingiskosningunum. Í fyrsta [...]

Stöndum langt að baki öðrum þjóðum í menntamálum

Ef opinber útgjöld eru skoðuð með tilliti til hlutdeildar þjóðarinnar á aldrinum 5 ára til 29 ára kemur í ljós að Ísland er einungis í 14. sæti af 29 OECD þjóðum í framlögum til menntamála. Við erum langt að baki öðrum Norðurlandaþjóðum. Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland eru um 30% fyrir ofan okkur í framlögum [...]

Skýr skattastefna Samfylkingarinnar

Í ljósi þeirra staðreyndar að skattbyrði einstaklinga hefur aukist til muna í tíð núverandi ríkisstjórnar er ekki furða að nánast allir stjórnmálaflokkar hafi á kosningastefnuskrá sinni að lækka skatta á einstaklinga. Í ljósi þeirra staðreyndar að skattbyrði einstaklinga hefur aukist til muna í tíð núverandi ríkisstjórnar er ekki furða að nánast allir stjórnmálaflokkar hafi [...]