Heilbrigð þjóðernisstefna

En þjóðernisstefna birtist í margs konar myndum. Hún þarf alls ekki að fela í sér neitt hatur á fólki af öðrum uppruna og birtist þá aðeins sem heilbrigð samkennd fólks sem hefur sameiginlega menningu og bakgrunn og vill varðveita sérkenni sín. Þegar svo háttar til er engin ástæða til að amast við henni. Þannig er [...]

Frjálsræði fjölmiðla

Í grein eftir G. Valdimar Valdemarsson, sem birtist á vefritinu Tímanum í dag, er fjallað um það þegar Róbert Marshall hjá Stöð 2 sagði upp störfum vegna rangrar fréttar varðandi það þegar Ísland var sett á lista yfir hinar „viljugu þjóðir“. Augljóst er að mikill hiti er í G. Valdimar, ekki bara yfir þessari tilteknu [...]

Versta stjórnarformið

Nú er það staðfest; Viktori Júszhenko var byrlað eitur í kosningabaráttunni. Var honum gefið svo mikið díoxín að 6.000 sinnum meira er af því í líkama hans en eðlilegt er og hefur meira magn díoxíns aðeins einu sinni áður fundist í manneskju. Með þessu hafa andstæðingar Júszhenkos annaðhvort ætlað að drepa hann eða veikja þrótt [...]

Ungir framsóknarmenn á villigötum

Hinn 28. þ.m. gáfu Ungir framsóknarmenn í Reykjavíkurdæmi suður út ályktun – sem birt er á heimasíðu Ungra framsóknarmanna, suf.is – þar sem hvatt er til þess að íslensk stjórnvöld skoði gaumgæfilega hvort ekki sé hægt að koma til móts við þær raddir að friðarverðlaun Nóbels verði afhent í „friðarríkinu Íslandi“. Þær raddir, sem hér [...]

Orðfæri stjórnmálamanna

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra, þar sem tiltekin ummæli hins síðarnefnda um hinn fyrrnefnda voru dæmd dauð og ómerk, vekur upp áhugaverð álitaefni. Hversu langt eiga stjórnmálamenn að ganga í að tjá sig um menn og málefni á opinberum vettvangi? Eiga þeir að segja það hreint út, telji [...]

Þjónkun við auðvaldið?

Fátt er meira þreytandi en málflutningur sem gengur út á að víkja sér undan efnislegri umræðu en gera þess í stað aðra þátttakendur að umræðunni ótrúverðuga. Í fyrradag birtist grein á Múrnum eftir Sverri Jakobsson, þann óheimska mann, sem e.t.v. er ekki rituð í þeim tilgangi en sem ber þó engu að síður keim af [...]

Synjunarvald forseta Íslands

Þessi klausa kann að virðast sannfærandi við fyrstu sýn. En þegar nánar er að gáð kemur í ljós að Vefþjóðviljinn tekur ekki afstöðu til mjög veigamikils atriðis í umfjöllun sinni, þ.e. að í athugasemdum við 26. gr. í greinargerð með því frumvarpi, sem varð að stjórnarskránni 1944, er beinlínis tekið fram að ákvörðun um synjun [...]

Hið raunverulega frelsi

Hvað er frelsi? Oft hef ég spurt sjálfan mig þessarar spurningar í góðu tómi og þótt svarið vandfundið. Hægra fólkið telur sig hins vegar hafa fundið það. Að vera frjáls sé að fá að vera sem mest í friði með sína pyngju fyrir ríkisvaldinu. Óréttlátt sé að eitthvert pakk, sem kosið hefur verið af almenningi [...]

Firrur hægrimanna

Hinn 15. þ.m. birtist ágæt grein á Tíkinni eftir Guðríði Sigurðardóttur þar sem meðal annars er fjallað um sprengjuárásirnar í Madríd, hverjir hafi staðið að baki þeim og áhrif þeirra á úrslit þingkosninganna á Spáni, þ.e. sigur Sósíalistaflokksins undir forystu José Luis Rodríguez Zapatero. En þó að greinin sé ágæt er útilokað að vera sammála [...]