Jens Gustavsberg

Það er ekki á hverjum degi þar sem maður fær tækifæri til að láta ljós sitt “sjæna” eins og maður segir í sölubransanum. En í dag fær maður einmitt slíkt tækifæri. Ég heiti Jens Gústavsberg, sænsk móðir nefnilega og ég ætla að verpa hér ljósi á ýmis málefni, segja skoðanir mínar umbúðarlaust og láta til mín taka í þjóðfélagsumræðunni. Fylgist spennt með hér í skoti mínu á veraldarvefnum.* Um Jens Gústavsberg. Fullt nafn: Jens Gústavsberg Aldur: 34 ára Menntun: Í skóla lífsins Starfsferill: Sjálfstætt starfandi farandsölumaður um þessar mundir. Áður hef ég starfað við sjávarútveg, landbúnað og naglsnyrtingar. *Af gefnu tilefni skal tekið fram að skoðanir, hugmyndir eða annað sem hér birtist endurspeglar á engan hátt afstöðu Ungra jafnaðarmanna enda yfirleitt illa ígrundað og vafasamlega framsett. Ungir jafnaðarmenn taka enga ábyrgð á sannleiksgildi eða innihaldi nokkurs sem hér kann að verða sett fram. Umkvartanir og ábendingar skulu sendast á netfangið j.gustavsberg@gmail.com.

Meira í sama flokki

Stefnir dalakarlinn á Bessastaði?

Ég heyrði af því að einn af betri uppbótar þingmönnum Alþingis hefði gengið inn á bar og öskra „Jesss“ eftir að hann lýsti vantrausti á ríkisstjórnina.  Sauðahirðirinn úr Dalasýslu hefur alltaf verið trúr sjálfum sér.  Og gekk vasklega fram í gær.  Hann að vísu kom aftan að félögum sínum og er núna ómerkingur orða sinna en hvað er það þegar sannfæringin er annarsvegar? Heiðarleikinn og traust er ekkert sem stjórnmálamaður þarfá að halda.

Heimsýnarkóngurinn er nefnilega sjálfstæður maður.  Hann fer stundum upp en auðvitað fer lyftan aftur niður.  Það er bara eins og gengur.  Honum verður örugglega refsað, ómaklega, fyrir að standa með sjálfum sér með því að verða vinafár, jafnt á þingi sem annarsstaðar. En það er ekki öll nótt úti enn.

Það er nefnilega einn maður sem hefur haft svipaða stefnu í sinni pólitík.

Það skyldi þó aldrei verða að Ásmundur Einar Daðason endaði á Bessastöðum?