Uj styður stjórnlagaþing
Ungir jafnaðarmenn vilja að stjórnlagaþing sé haldið og styðjum við ríkisstjórnina í því að halda því til streitu. Stjórnlagaþing er hluti af ósk þjóðarinnar um endurskoðun stjórnarskráarinnar og ber okkur skylda að verða við þeirri ósk. Við hörmum hvernig staðið var að kosningum til stjórnlagaþings en bendum jafnframt á að ákvörðun Hæstaréttar er umdeilanleg. Einnig [...]
Árangur, ekki keppni um fjárframlög
Á Íslandi eru 7 háskólar sem allir hafa sín sérkenni, áherslur og sérstöku menningu. Katrín telur að fremur en að sameina háskólana sé hægt að samræma háskólastarfið, samvinna meðal skóla gerð auðveldari og nemendum gert kleift að skipta um skóla án vandræða.
Sameining háskóla og stefna ríkisstjórnar í menntamálum
Ungir jafnaðarmenn telja sameiningu háskólanna skapa tækifæri til þess að styrkja menntun í landinu og efla rannsóknir. Með sameiningu háskólanna er hægt að ná fram hagræðingu með því að sameina yfirstjórnir en tryggja áframhaldandi fjölbreytni.
Sameining háskóla og stefna ríkisstjórnar í menntamálum
[ 18. janúar 2011; 20.00 to 22.00. ] Ungir jafnaðarmenn bjóða til opins fundar þriðjudaginn 18. janúar á efri hæð Kaffi Sólon kl. 20.
Frummælendur eru Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Skúli Helgason, formaður menntamálanefndar.
Hvatt verður til umræðna eftir framsögurnar og gefst fólki færi á að leggja fram spurningar.
Allir velkomnir!
Bjarni Benediktsson:
“Ég er bara spilltur lögfræðingur úr Garðabænum” (Skaupið)
