Jens Gustavsberg

Það er ekki á hverjum degi þar sem maður fær tækifæri til að láta ljós sitt “sjæna” eins og maður segir í sölubransanum. En í dag fær maður einmitt slíkt tækifæri. Ég heiti Jens Gústavsberg, sænsk móðir nefnilega og ég ætla að verpa hér ljósi á ýmis málefni, segja skoðanir mínar umbúðarlaust og láta til mín taka í þjóðfélagsumræðunni. Fylgist spennt með hér í skoti mínu á veraldarvefnum.* Um Jens Gústavsberg. Fullt nafn: Jens Gústavsberg Aldur: 34 ára Menntun: Í skóla lífsins Starfsferill: Sjálfstætt starfandi farandsölumaður um þessar mundir. Áður hef ég starfað við sjávarútveg, landbúnað og naglsnyrtingar. *Af gefnu tilefni skal tekið fram að skoðanir, hugmyndir eða annað sem hér birtist endurspeglar á engan hátt afstöðu Ungra jafnaðarmanna enda yfirleitt illa ígrundað og vafasamlega framsett. Ungir jafnaðarmenn taka enga ábyrgð á sannleiksgildi eða innihaldi nokkurs sem hér kann að verða sett fram. Umkvartanir og ábendingar skulu sendast á netfangið j.gustavsberg@gmail.com.

Meira í sama flokki

Fjársterki, siðlegi siðfræðingurinn, Stefán Einar Stefánsson

Eins og margir hafa rekið augun í og heyrt af í fréttum undanfarið hefur einn helsti siðfræðingur þjóðarinnar, Stefán Einar Stefánsson, verið að tjá sig um siðbótina í íslenskri pólitík. Eða eins og vitnað er í þennan meistara á Pressan.is, þegar að hann sagði sig úr stjórn SUS eftir að upp komst um styrkjamálið stóra frá Baugi og Bjöggunum:

“Ef hugur fylgdi máli og lögunum ætlað að tryggja sjálfstæði stjórnmálaflokka gagnvart viðskiptalífinu og fjársterkum einstaklingum, fól viðtaka styrkjanna í sér aðför að því markmiði.”

Þetta eru auðvitað orð í tíma sögð!

Nú hafa hins vegar einhverjir sjálfsumglaðir, latté-lepjandi  vinstrimenn verið að væla um það að þetta hafi verið sá aðili sem leigði Fokker flugvél til að ferja um 50 manns á landsþing SUS á Ísafirði á síðasta ári.

Hvaða máli skiptir það? Má maðurinn ekki nota sína peninga í það sem hann vill? Ef fjársterkur aðili er tilbúin til að greiða fleiri hundruð þúsund í leigu á flugvél til að fá völd í ungliðahreyfingu, hvað er þá að því…?