Ungir jafnaðarmenn með vel sóttan fund um mansal
Ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir fundi um mansal að Hallveigarstíg 1 á þriðjudagskvöldið. Gestir fundarins voru Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri og lögræðingur Alþjóðahúss. Fundurinn var þétt setinn og mættu um 35 manns.
Ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir fundi um mansal að Hallveigarstíg 1 á þriðjudagskvöldið. Gestir fundarins voru Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri [...]
PR-vandi útvegsins
Hagsmunasamtök á borð við LÍÚ og LS eiga að vera í fararbroddi ásamt sjávarútvegsráðuneytinu við að draga fram það jákvæða við útveginn.
Barnasáttmáli
Þann 20. Nóvember síðastliðin, átti Barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna 20 ára afmæli. Réttindi barna hafa alltaf verið jafnaðarmönnum hugleikin og er því ekki úr vegi að líta yfir farin veg.
Fiskurinn – sameiginleg auðlind þjóðarinnar?
Árið 1984 var kvótakerfið fest í lög með það að markmiði að tryggja verndun fiskistofna og fyrsta árið var úthlutunin án endurgjalds. Margir þeir sem fengu úthlutað hafa mokgrætt á henni og margar byggðir landsins þannig orðið af mikilli atvinnu. Eftir að “kvóta-framsals-brask-kerfið” kom til, þá var það fjármagnseigandinn sem hafði öll vopnin – gat [...]
Fórnum ekki framtíðinni
Útgerðarmaðurinn Sigfús Jóhannesson lætur hafa eftir sér af fréttastofu RÚV að við séum að ala upp þorskstofnin fyrir aðrar þjóðir. Hægt er að lesa í mál hans á þann veg að við ættum semsagt að veiða meira en góðu hófi gegnir af þorski, því að ef hann fær að stækka og eflast eðlilega þá eru [...]
Ungir jafnaðarmenn boða til opins fundar um mansal þriðjudaginn 24. nóvember . Fundurinn er haldin að Hallveigarstíg 1. Húsið opnar kl. 19:30 og hefst fundurinn kl. 20:00. Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, Fríða Rós Valdimarsdóttir, mannfræðingur hjá Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri og lögfræðingur Alþjóðahúss, verða gestir fundarins.
Allir [...]
Fullveldi nútímans
Andstæðingar ESB nýta sér sjálfstæðisbaráttu Íslendinga óspart sem rök gegn aðild Íslands að sambandinu. Með inngöngu í ESB séum við í reynd að afsala fullveldinu. Fullveldi er hins vegar ekki einfalt hugtak og felur í sér innri og ytri hliðar, sem snúa að einkarétti okkar á málefnum innan landamæra landsins og rétt okkar til að taka þátt í alþjóðasamstarfi. Samkvæmt [...]
Ásmundi gert lífið leitt
Aðsend grein eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur, fyrrverandi formann Ungra jafnaðarmanna og varaþingmann Samfylkingarinnar, þar sem fjallað er um ummæli Ásmundar Einars Daðasonar, nýkjörinn formann Heimsýnar og þingmann Vinstri grænna, um að hlutverk hans sem formanni Heimssýnar sé að gera Samflykingunni lífið leitt. Í greininni segir m.a. að: „Það er engin frétt að Ásmundur sé á [...]
Erum við tilbúin að fórna EES samningnum?
Í dag eru gjaldeyrishöft á Íslandi. Það er bannað samkvæmt EES samningnum. Í dag horfir Evrópusambandið framhjá því, vegna þess kalda veruleika sem skall á eftir gróðæri síðustu ára. Ef hinsvegar við ætlum að hafa gjaldeyrishöft og handvirkar stýringu á gengi krónunnar sem björgunarhring í brotsjó alþjóðlegra fjármálamarkað í framtíðinni getum við kysst bless góðvild [...]
Bifvélavirki með mikilmennskubrjálæði kastar steinum úr glerhúsi og geigar
Fjallað er um þær tímabundnu ráðningar sem hafa átt sér stað innan stjórnarráðsins. Greinarhöfundur heldur því fram að ekkert óeðlilegt sé við þær ráðningar sem hafa átt sér stað enda ljóst að þessir aðilar sem innan ráðuneytanna starfa tímabundið, munu hverfa á braut með þeim ráðherrum sem þá skipuðu. Þó svo að Davíð Oddsson þvaðri [...]
Ungir jafnaðarmenn boða til fundar um kynferðisbrotamál
Ungir jafnaðarmenn boða til fundar um kynferðisbrotamál þriðjudaginn 17. nóvember . Fundurinn er haldin að Hallveigarstíg 1. Húsið opnar kl. 19:30 og hefst fundurinn kl. 20:00.
Árni Páll Árnason og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi – Á mannamáli, verða gestir fundarins
Allir velkomnir!
Ungir jafnaðarmenn boða til fundar um kynferðisbrotamál þriðjudaginn 17. nóvember . [...]
Skattapólitík jafnaðarmanna
Aðsend grein eftir Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, þar sem fjallað er um áherslur jafnaðarmanna í skattamálum. Í greininni segir m.a. að: „Sú norræna velferðarstjórn sem Samfylkingin veitir forystu hefur á stefnuskrá sinni að standa vörð um kjör lágtekjufólks og þá sem við erfiðastar aðstæður búa og dreifa byrðunum með sanngirni, jöfnuð og réttlæti að [...]
Upplýst umræða um fjárlög
Þó svo að fyrstu fjárlög fyrstu vinstristjórnarinnar séu ekki gerð við auðveldar aðstæður má þó sjá ýmislegt jákvætt. Forgangsraðað er í þágu velferðar. Upplýst umræða sem einkennist ekki af upphrópunum mun skila góðum fjárlögum. Það er því þörf á því að stuðlað sé að upplýstri umræðu.
Fyrstu fjárlög fyrstu vinstristjórnarinnar eru ekki gerð við auðveldar aðstæður. [...]
Réttindi trans fólks
Því ber að fagna að átta þingmenn allra flokka hafa lagt fram á Alþingi tillögu að þingsályktun um réttarbætur fyrir transfólk. Tillagan felur í sér að nefnd verði sérstaklega fengin til að skoða lagalega og félagslega stöðu transfólks og gera tillögur um úrbætur til að hvers kyns misrétti gagnvart transfólki hverfi hér á landi og full mannréttindi þess [...]
Svo bregðast krosstré sem önnur tré.
Hugmyndir um að hækka tryggingagjald á laun fremur en að setja á hóflegan umhverfisskatt eru skaðlegar launafólki. Álrisum landsins er engin vorkun, enda hafa þeir síðustu ár lifað ágætis lífi í orkunýtingu á tombóluprís. Samkvæmt greinarhöfundi er sorglegt, að Vilhjálmur Egilsson haldi að hann stjórni Samtökum Álvinnslulífsins og Gylfi Arnbjörnsson sjái sig sem forseta Álþýðusambands Íslands.
Já, svo gera [...]
Lissabon-hvað?
Nú stefnir í að nýr sáttmáli Evrópusambandsríkjanna um stjórnskipan sambandsins, svonefndur Lissabon-sáttmálinn, verði fullgildur eftir langan aðdraganda. Greinarhöfundur fer yfir helstu atriðin sem munum breytast með tilkomu sáttmálans. Ekki er annað hægt en að fagna því að öll aðildarríki Evrópusambandsins hafi nú samþykkt Lissabon-sáttmálann. Við getum því búist við enn skilvirkara og lýðræðislegra Evrópusambandi á næstunni.Aðdragandinn [...]
Yfirveguð ESB nefnd
Ekki virðist vanta yfirvegun og fagmennsku við skipun samninganefndar Íslands við ESB, sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tilkynnti um í gær. Nefndin atarna er vel mönnuð og almennt virðast nefndarmenn vera ákaflega vel hæfir. Allt tal um óðagot við aðildarferlið virðist missa því marks.
Jæja, þá er hinni langþreyttu spurningu um hvort við eigum að sækja um [...]
Græna stóriðjan
Aðsend grein eftir Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, þar sem fjallað er um stöðu garðyrkjubænda. „Það er til mikils að vinna að efla stöðu garðyrkjunnar með því að selja henni rafmagn á stóriðjuverði. Þá eru henni allir vegir færir og þarf ekki á annarri vernd eða stuðningi að halda,“ segir m.a. í lok greinarinnar.
Aðsend grein [...]
Tökum mansal föstum tökum
Mörgum brá eflaust við í október þegar upp komst um mansalsmálið á Suðurnesjum. Mansal hefur ekki mikið verið í opinberri umræðu hérlendis og þeir sem hafa ljáð máls á því, hafa oftast gert það fyrir daufum eyrum. Mansal er hins vegar staðreynd á Íslandi og á þessum málaflokki þarf að taka með miklum krafti.Mörgum brá [...]
Hinn andvaralausi aðalsmanna – flokkur
Sjálfstæðisflokkurinn er að njóta sín í skoðanakönnunum, í skugga erfiðra verkefna sem bíða Samfylkingu og Vinstri grænum. Samkvæmt greinarhöfundi verða vinstri menn að takast á við íhaldið með umræðu til að svipta hulunni af gamla, óbreytta auðvaldsíhaldinu.Eftir samfleytta 18 ára stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins hefur honum loks verið rutt frá og nýjir straumar fá að njóta sín [...]
Icesave aftur á dagskrá
Icesave er aftur komið á dagskrá en fátt nýtt virðist ætla að koma þar fram, enda viðsemjendur samþykkt mikilvægustu fyrirvara Alþingis. Greinarhöfundur spyr hvort að ástæða sé til að tefja lyktir þessa máls með málþófi þegar ekkert nýtt á að koma fram með þeim umræðum. Greinin endar með umfjöllun um hin títtnefnda galla regluverksins sem [...]
