Svört skýrsla um fiskveiðistjórnunarkerfið
Í þessari grein fjallar Þórður Már Jónsson um skýrslu sem hann og Finnbogi Vikar haf a skrifað um brotalöm í fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þórður Már og Finnbogi afhjúpa í skýrslunni grófa misn0tkun á kerfinu til hagsbóta fyrir fáa og í andstöðu við markmið þess.
Í nokkurn tíma hef ég unnið að gerð skýrslu um ákveðnar brotalamir á fiskveiðistjórnunarkerfinu [...]
UJ fordæma ofbeldið í Íran
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fordæma grimmd íranskra stjórnvalda í garð almennings. Fólk um allt landið, sem að undanförnu hefur mótmælt meintum kosningasvikum forsetans Mahmoud Ahmadinejad, sætir harðræði hersveita stjórnvalda, sem hafa bannað mótmæli, lokað á fréttaflutning og beitt gengdarlausu ofbeldi. Að minnsta kosti nítján manns hafa dáið í óeirðunum og mörg hundruð hafa verið handteknir.
Ungir [...]
Fordæmum ofstæki íranskra stjórnvalda
LEIÐARI Þrátt fyrir kreppu, skuldir og mótlæti mega Íslendingar vera þakklátir fyrir að búa í friðsælu lýðræðisþjóðfélagi, þar sem andóf er ekki bara leyfilegt, heldur nauðsynlegur hluti lýðræðislega ferlisins.
LEIÐARI Kaldrifjað morð á 26 ára gamalli íranskri stúlku, Neda Agha-Soltan, sem ekkert hafði unnið sér til saka annað en að mótmæla, hefur vakið óhug um allan [...]
Réttarríkið þarfnast nýsköpunar
Eitt allra mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinar nú er að fá almenning til að trúa að hann búi í réttarríki. Sú einfalda en mikilvæga hugmynd, réttarríkið, hefur því miður fengið að þola töluverða ágjöf. Hneykslismálin hrannast upp í vitund fólks því þótt spillingarbrim brjóti nú á landinu rótar brimið upp gömlum málum sem höfðu sokkið til botns, [...]
UJ krefjast hærri námslána
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að námslán fyrir næsta skólaár hækki. Lánin eru lág fyrir og bólgnuðu ekki út í góðærinu. Núverandi námslánakerfi gerir að verkum að margir stúdentar hafa treyst á vinnu með skóla eða hjálp frá fjölskyldum til að eiga fyrir salti í grautinn. Á tímum atvinnuleysis er ekki lengur hægt að treysta á [...]
Ungir jafnaðarmenn gera átak í innflytjendamálum
Ungir jafnaðarmenn hafa sett á fót nefnd undir yfirskriftinni „Hvernig eiga Íslendingar að koma fram við hælisleitendur og innflytjendur?“ Nefndin á að fara vel yfir bæði löggjöf um málefni útlendinga og framkvæmd þeirra mála á Íslandi. Skil á úrbótatillögum ásamt greinargerð verða afhent fyrir 11. júlí. Nefndin skiptir sjálf með sér verkum.
Áhugasamir geta haft samband [...]
Salka fagnar nýjum bæjarstjóra
Þriðjudaginn 9. júní tók oddviti Samfylkingingarinnar á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, við starfi bæjarstjóra Akureyrarkaupstaðar. Þessi bæjarstjóraskipti eru hluti af farsælu meirihlutasamstarfi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins þar sem samið var um að Samfylkingin fengi bæjarstjórastólinn síðasta árið. Þetta er í fyrsta skipti sem Samfylkingin hefur bæjarstjóra á Akureyri innan sinna raða og er þetta stór áfangi [...]
