Opinn kosningafundur
Miðvikudaginn 18. mars verður haldinn kosningaþjöppunarfundur í kosningamiðstöðinni Skólabrú. Áætlunin er að leggja línurnar fyrir komandi baráttu, kasta og grípa hugmyndir. Fundurinn hefst tímanlega kl. 18:00 og mun standa yfirí tvær klukkustundir eða til 20:00. Dagskrá í grófum dráttum: nýr vefur verður kynntur, Dagur B. og Kristján Guy Burgess (KGB) verða með framsögu, síðan verður farið í hugarflugsvinnu og að endingu verður samantekt. Allir jafnaðarmenn hjartanlega velkomnir!
