Stjórnmálaskóli alla vikuna

Stjórnmálaskóli UJ fer fram dagana 4., 6., og 8. nóvember. Þar verða fluttir skemmtilegir fyrirlestrar um pólitík og boðið upp á lifandi umræður við fræðimenn og pólitíkusa. Skólinn er opinn öllum og að sjálfsögðu eru engin skólagjöld. Hann er haldinn í Háskóla Íslands í st. 101 í Odda. Sjáumst!
LIFANDI OG SKEMMTILEGIR FYRIRLESTRAR UM PÓLITÍK Í [...]

Ársfundur ASÍ

Ásgeir Runólfsson, varaformaður Ungra jafnaðarmanna, situr ásamt öðru góðu fólki á ársfundi ASÍ. Hefur UJ þar sérstakan bás. Ásgeir færir okkur nú fregnir af fundinum. ,,Þingið er helgað ungu fólki og fyrir þingið voru lögð fram drög að metnaðarfullri stefnu ASÍ í málefnum ungs fólks. Þau má nálgast hér. Það er mikið fagnaðarefni að þingið [...]

Af hverju ekki á Íslandi?

Í grein Margrétar Rósar Sigurjónsdóttur segir hún frá muninum á að vera ábyrgur neytandi í Danmörku og á Íslandi. „Framleiðendur voru látnir axla ábyrgð og sjá til þess að hvorki náttúran né neytendur þyrftu að líða fyrir framleiðsluaðferðir þeirra.“

Það er ekki mjög langt síðan ég varð ábyrgur og siðferðilega spyrjandi neytandi. Nánar tiltekið var [...]

Ísland á krossgötum: Fundur með Þórunni og Árna Páli

Opinn fundur Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi verður haldinn í dag, mánudaginn 20. október kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi.

Opinn fundur Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi verður haldinn í dag, mánudaginn 20. október kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Yfirskrift fundarins er Ísland á krossgötum og eru gestir fundarins þau Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Árni Páll Árnason alþingismaður. Allir [...]

[Ályktun] Yfirvofandi flótti ungs fólks

,,Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórnin stefni að inngöngu í Evrópusambandið, það er lykillinn að endurreisn Íslands. Skorað er á alþingismenn – sama í hvaða flokki þeir eru – og allan almenning að tala fyrir þessum sjónarmiðum. Sérstaklega er skorað á aðrar ungliðahreyfingar að taka þessari áskorun.”
Yfirvofandi flótti ungs fólks – UJ krefst aðgerða

Ísland hefur [...]

Verjum heimilin

Samfylkingin efnir til fundar á sunnudaginn klukkan 15:00 og verður fundurinn haldin á Grand Hótel og er fundurinn opinn öllum félagsmönnum. Rætt verður um tíðindin sem orðið hafa í fjármálakerfi landsins með tilheyrandi afleiðingum fyrir heimilin í landinu.

Samfylkingin efnir til fundar með flokksmönnum á sunnudag, 19. október kl. 15, þar sem rætt verður um þau [...]

[Ályktun] Réttlát námslán

Ungir jafnaðarmenn krefjast réttlátra námslána á erfiðum tímum. Ríkisstjórnin verður að gera námsmönnum erlendis kleyft að kaupa gjaldeyri og breyta reglum LÍN þannig að lán séu greidd út mánaðarlega. Þá verður tryggja að lánin haldi í við verðbólguna.
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórn og yfirmenn banka landsins geri námsmönnum og öðrum sem staddir eru [...]

UJ sammála Ágústi Ólafi um Davíð

Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna um nýliðna helgi kom fram skýr krafa um að Davíð Oddson og aðrir Seðlabankastjórar ættu að víkja.
Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna um nýliðna helgi kom fram skýr krafa um að Davíð Oddson og aðrir Seðlabankastjórar ættu að víkja. Í ræðu sinni sagði formaður félagsins, Anna Pála Sverrisdóttir, að Davíð Oddson væri gereyðingarvopn [...]

Fjölmiðlar, ykkar ber skylda til að vanda fréttaflutning

,,Þá er auk þess nauðsynlegt að ríkisstjórnin og þingmenn, og ekki síst fjölmiðlar brýni það fyrir fólki að halda ró sinni”. Segir Jóhann Jónsson formaður Sölku félags ungra jafnaðarmanna á Akureyri.
Þetta eru ekki eftirsóknarverðir tímar sem íslenska þjóðin lifir núna. Allt virðist vera að fara á versta veg og fjölmiðlar keppast um að vera [...]

Fundur í kvöld fellur niður

Áður auglýstur fundur með ráðherrum Samfylkingarinnar á Grand hóteli í kvöld fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka.

Áður auglýstur fundur með ráðherrum Samfylkingarinnar á Grand hóteli í kvöld fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka.

 

 
 

Verjum heimilin

Samfylkingin heldur opinn fund um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í kvöld á Grand Hótel Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 20:00.
Samfylkingin heldur opinn fund um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í kvöld á Grand Hótel Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 20:00. Frummælendur á fundinum verða ráðherrarnir Björgvin G. Sigurðsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson. Fundarstjóri verður Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar.  Politik.is hvetur alla [...]

Ný stjórn UJ

Á landsþingi UJ 2008 voru samþykktar breytingar á stjórnskipulagi félagsins. Nú er starfrækt miðstjórn sem hefur æðsta vald félagsins á milli landsfunda og framkvæmdastjórn sem sér um daglegan rekstur. Fulltrúar í framkvæmdastjórn eiga líka sæti í miðstjórn ásamt fulltrúum kjördæmisráða UJ.
Á landsþingi UJ 2008 voru samþykktar breytingar á stjórnskipulagi félagsins. Nú er starfrækt miðstjórn sem [...]

Anna Pála endurkjörin formaður Ungra jafnaðarmanna

Anna Pála Sverrisdóttir var endurkjörin formaður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi hreyfingarinnar um helgina. Meðal þess sem samþykkt var á þinginu var að Ungir jafnaðarmenn vilja að björgunaraðgerðir á fjármálamarkaði miðist við hagsmuni almennings og að hætt verði að líta á Seðlabanka Íslands sem hvíldarheimili fyrir lífsþreytta stjórnmálamenn.

Anna Pála Sverrisdóttir var endurkjörin formaður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi [...]

Öll él birtir upp um síðir

,,Nú verðum við öll að taka saman höndum og komast í gegnum þennan blindbyl því að lokum mun birta aftur til”. Segir Sölmundur Karl Pálsson ritstjóri politik.is í grein dagsins.
Fátt virðist ganga upp í efnahagslífi íslendinga, í raun gengur ekkert í hinum alþjóðlega fjármálaheimi. Bankar hafa ýmist farið í þrot eða sameinast öðrum bönkum. Seðlabankar [...]

Landsþingið ‘08: Frambjóðendur

Kjörstjórn bárust framboð frá 18 einstaklingum í embætti sem kosið verður til á landsþingi Ungra jafnaðarmanna, í Hafnarfirði 4.-5. október næstkomandi.
TILKYNNING FRÁ KJÖRSTJÓRN
Kjörstjórn bárust framboð frá 18 einstaklingum í embætti sem kosið verður til á landsþingi Ungra jafnaðarmanna, í Hafnarfirði 4.-5. október næstkomandi.
Þeir eru:
Formaður: Anna Pála Sverrisdóttir
Varaformaður: Ásgeir Runólfsson
Gjaldkeri: Valgeir Helgi Bergþórsson
Fræðslustjóri: Margrét Rós [...]

Salka: Ný stjórn á Akureyri

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Akureyri var haldin þriðjudagskvöldið 30. september. Á honum var kosin ný stjórn og félaginu gefið nýtt nafn.
Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Akureyri var haldin þriðjudagskvöldið 30. september. Á honum var kosin ný stjórn og félaginu gefið nýtt nafn. Undanfarið hafa aðildarfélög Ungra jafnaðarmanna verið að nefna sig eftir íslenskum bókmenntapersónum. Ungir jafnaðarmenn [...]